Barnakeðja og neon-ljós við tjörnina 7. janúar 2012 12:44
Barnaheill á Íslandi ætla í dag að freista þess að mynda keðju í kringum Reykjavíkurtjörn með aðstoð 1000 barna til að vekja athygli á réttindum barna hér á landi en að sögn samtakanna hefur sjaldan verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Börn og foreldrar þeirra eru hvött til að taka þátt í þessu framtaki en boðið verður upp á heitt kakó og svo verður kveikt á neonljósum. Keðjan verður mynduð klukkan fjögur. Atburðurinn í dag er upphafspunktur samstarfsins Heillakeðja barnanna árið 2012, sem er samstarf Barnaheilla og tólf íslenskra fyrirtækja. Markmið samstarfsins er að safna fé í þágu barna. Fjármagninu verður varið jafnt til innlendra og erlendra verkefna. Samtökin leituðu til tólf íslenskra fyrirtækja og óskuðu eftir því að þau tækju að sér einn mánuð á árinu með aðstoð viðskiptavina sinna. Þann mánuð leggja þau áherslu á réttindi barna og safna fé til styrktar starfsemi Barnaheilla. Hægt verður að fylgjast með hvaða leiðir hvert fyrirtæki fer á facebook síðu samstarfsins. Blómaval er það fyrirtæki sem ríður á vaðið og gerir janúar að mánuði barnanna. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá undir yfirsögninni „Fjölskyldan, börnin og heilsan". Einstaklingar geta einnig lagt sín lóð á vogarskálarnar og stofnað sínar eigin heillakeðjur inná vefnum heillakedjan.is. Þannig geta þeir haft samband við sína nánustu og safnað fé til ákveðinna verkefna hjá Barnaheillum. Loks er öllum heimilt að styðja starf samtakanna með frjálsum framlögum eða mánaðarlega sem heillavinir. Þá er bent á vef samtakanna, barnaheill.is eða bankareikninginn 0327-26-2535 kt. 521089-1059.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira