Margir fara flatt í hálkunni 7. janúar 2012 14:00
Mikil hálka er nú á götum og gangstéttum borgarinnar og er vegfarendum ráðlagt að fara varlega. Mikill erill var á slysadeild Landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og búist við fleirum þegar líður á daginn. Asahlákan fór ekki framhjá borgarbúum í gær en stórir pollar mynduðust á hálfbráðnuðu íslagi sem safnast hefur saman og myndar stórhættulegt svell, þá hafa hjólför myndast í snjólögum og safnast vatn nú þar saman sem getur falið hálkuna. Margir skemmtanaglaðir borgarbúar áttu í erfiðleikum í nótt og fluttu sjúkraflutningamenn 35 manns á bráðamóttöku sem höfðu slasað sig í hálkunni eða af skemmtanahaldi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk að minnsta kosti fimm tilkynningar um hálkuslys mis alvarleg og því ljóst að mörgum hefur skrikað fótur á svellinu. Á slysadeild voru margir af þeim sem slösuðu sig í nótt komnir á bæklunardeild í aðgerð eða frekari aðhlynningu. Vakthafandi læknir á slysadeild segir morguninn hafa verið frekar rólegan en hann býst við fleiri hálkuslysum þegar líður á daginn og fólk fer á stjá. Hann vill hvetja fólk til að fara varlega, sérstaklega þá sem eru komnir yfir miðjan aldur og eiga erfitt með að fóta sig. Hálkan er mjög lúmsk og þarf ekki meira en eitt feilspor til að maður geti endað kylliflatur á götunni. Vegagerðin varar einnig við hálku eða flughálku um allt land og biður vegfarendur um að fylgjast vel með færð og ástandi vega þar sem það getur breyst á skömmum tíma. Spáð er áframhaldandi rigningu í nótt og því vonandi að íslagið fari að bráðna í burtu og hætta að valda borgarbúum usla.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira