Innlent

40 umferðaróhöpp um helgina

Þessi bifreið valt í hálkunni um helgina.
Þessi bifreið valt í hálkunni um helgina. Mynd/lögreglan
Um fjörutíu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Það verður að teljast heldur mikið en þess ber þó að geta að færð á vegum hefur verið afleit undanfarna daga. Flest óhöppin voru minniháttar og ekki er vitað um slys á fólki en það er auðvitað fyrir mestu. Talsvert eignatjón varð í einhverjum tilvikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×