Tristan Garner spilar afmælissönginn 27. desember 2012 12:00 Óli Geir Fagnar fimm ára afmæli Agent.is. Fréttablaðið/Anton „
Þetta byrjaði bara sem fíflagangur en nú eru komin fimm ár og við höfum haldið fjölda viðburða, sjáum núna um bókanir fyrir fimmtán skemmtistaði um landið og höfum verið að flytja inn hvern stóra plötusnúðinn á fætur öðrum,“ segir partípinninn Óli Geir hjá Agent.is. Agent.is heldur upp á fimm ára afmæli sitt um þessar mundir og segir Óli Geir þessi ár hafa verið frábær. „Þetta þróaðist út frá því að ég var að vinna sem barþjónn á skemmtistað þegar ég var átján ára. Eitt kvöldið var plötusnúðurinn veikur svo ég hljóp í skarðið. Það gekk svo vel að ég fór að spila oftar og var svo gerður að skemmtanastjóra þar. Síðan fór ég að spila á fleiri stöðum og áður en ég vissi af var ég farinn að skipuleggja alls konar partí úti um allt og þannig byrjaði ferillinn,“ rifjar Óli Geir upp. Í tilefni afmælisins ákvað Óli Geir að gefa sjálfum sér góða afmælisgjöf og flytja til landsins sinn uppáhalds plötusnúð, Tristan Garner. Sá mætir í afmælisteitið 29. desember og spilar afmælissönginn. „Svo er aldrei að vita nema hann taki fleiri lög líka,“ segir Óli Geir og hlær. Tristan Garner er franskur plötusnúður sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim á undanförnum árum. Auk hans kemur fjöldi íslenskra listamanna fram þetta kvöld. „Margir af þessum gaurum sem hafa verið að spila á mínum viðburðum ætla að koma og taka lagið,“ segir Óli Geir og nefnir sem dæmi Erp Eyvindarson, Steinda Jr. og hljómsveitina Úlfur Úlfur. „Við ætlum að enda árið með stæl. Þetta verður magnað,“ segir hann að lokum. -trs
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira