Innlent

Prestastefna sett í Hallgrímskirkju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Prestastefna hefst klukkan tíu í Hallgrímskirkju og stendur til miðvikudags. Gert er ráð fyrir að um 150 prestar og djáknar sæki stefnuna, samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu. Yfirskrift stefnunnar er Þjónandi kirkja og verður rætt um kærleiksþjónusta kirkjunnar, díakoníuna.

Á fyrsta degi stefnunnar kynnir dr. Kjell Nordstokke skýrslu Lúterska heimssambandsins, Þjónustan í síbreytilegu samhengi, sem kom út í íslenskri þýðingu fyrir skömmu.

Nýtt frumvarp til þjóðkirkjulaga verður rætt á morgun. Það verður lagt fyrir kirkjuþing í haust. Þá verður einnig fjallað um tillögur til breytinga á stjórnarskrá Íslands og ákvæði þar um þjóðkirkju.

Á miðvikudag kynnir dr. Ásdís Emilsdóttir Petersen doktorsrannsókn sína á leiðtogahæfileikum presta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×