Óánægja með Hróarskelduhátíðina 14. apríl 2011 16:00 Hróarskelda býður upp á ansi vonda dagskrá í ár að mati gagnrýnenda dönsku blaðanna. Nordicphotos/AFP
Danskir tónlistargagnrýnendur eru æfir yfir dagskrá Hróarskelduhátíðarinnar og segja hana vægast sagt ömurlega. Danskt tónlistaráhugafólk virðist vera þeim sammála. „2009 var allt í lagi, 2010 var fyrir neðan meðallag en dagskrá hátíðarinnar í ár er vonlaus,“ skrifar tónlistargagnrýnandi Ekstrablaðsins, Thomas Treo. Hann gefur dagskránni tvær stjörnur af sex mögulegum en samkvæmt netkosningu á vefsíðu blaðsins verðskuldar dagskráin ekki einu sinni svo góða dóma. Þeir sex þúsund sem taka þátt lýsa yfir megnri óánægju og þykir Hróarskelduhátíðin mega muna fífil sinn fegurri. „Mér leið eins og það væri verið að spá hellidembu alla dagana,“ skrifar Treo í gagnrýni sinni. „Maður hefði þurft að búa í helli til að hafa ekki séð Iron Maiden á sviði,“ bætir Theo við en bresku ellirokkarnir eru eitt af aðalatriðunum ásamt The Strokes, Arctic Monkeys og Kings of Leon. Treo bendir á að fjölmörg stór nöfn séu á tónleikaferðum um Evrópu um svipað leyti og Hróarskeldan fer fram en þau hafi hins vegar ákveðið að sniðganga hátíðina. Þar á meðal eru Paul Simon, Metallica, Arcade Fire og Primal Scream. „Og Bob Dylan, sem hefur margoft verið gestur á Hróarskeldu, ákveður að spila í Odense.“ Tónlistargagnrýnandi BT, Steffen Jungersen, tekur undir hvert orð hjá kollega sínum. „Ég ætlaði að vera búinn að skrifa pistil um hátíðina mun fyrr en ég bara trúði ekki mínum eigin augum. Þetta er virkilega glatað,“ skrifar Jungersen. Hann hefur jafnframt sömu áhyggjur af framtíð Hróarskeldu, hátíðir allt í kring geti boðið upp á listamenn á borð við Beyoncé og Coldplay en Danir sitji uppi með Iron Maiden. - fgg
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira