Aðgerðarleysi bankanna verði ekki liðið Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. apríl 2011 11:27 Árni Páll Árnason segir að bönkunum muni ekki líðast það að hafa skuldamál fyrirtækja óleyst til langs tíma. Mynd/ Vilhelm.
Reglum verður breytt þannig að það hafi í för með sér mikinn kostnað fyrir fjármálafyrirtæki að hafa lán í vanskilum. Þetta verður gert til að þrýsta á fjármálafyrirtæki að vinna úr skuldamálum fyrirtækja. Árni Páll Árnason sagði í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að það þyrfti að stilla saman strengi og þrýsta á bankana til að vinna hratt úr skuldamálum fyrirtækja. Gríðarlegt tjón stafi af því fyrir samfélagið þegar allir bankar bíði með úrlausn skuldamála fyrirtækja. „Og vekur upp verulega hættu á að við læsumst í vítarhring efnahagslegrar stöðnunar," sagði Árni Páll. Slíkt yrði ekki liðið. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vakti athygli á þessu máli á Alþingi. Hún kallaði eftir aðgerðum. „Að það verði ekki bara íhugað, heldur að það verði, eins og fljótt og auðið er, settar þær reglur sem fyrirtækin þurfa að fylgja þannig að þeim svíði undan fari þeir ekki að boðvaldi opinberra yfirvalda," sagði Sigríður Ingibjörg. „Við höfum kallað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það fari vandlega í saumana á þessum lánum sem eru í vanskilum og það verði dýrara fyrir bankana að hafa þessi lán í vanskilum. Þannig að það kosti þá mikið að gera ekki neitt," sagði Árni Páll. Hann sagði að Samkeppniseftirlitið væri líka að herða mjög að bönkunum, takmarka þann tíma sem þeir geti haldið yfirteknum fyrirtækjum í sinni eigu. „Og það þarf líka að stilla saman strengi milli Samkeppniseftirltisins og Fjármálaeftirlitsins til að tryggja að bankarnir skili fyrirtækjunum ekki of skuldsettum út í atvinnulífið aftur. Því ef þau eru áfram of skuldsett geta þau ekki ráðið til sín nýtt fólk og þau geta ekki ráðist í ný verkefni," sagði Árni Páll.
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Fleiri fréttir „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Sjá meira