Eurovison-þulurinn: Aldrei upplifað annað eins - leið eins og Adolf Inga 10. maí 2011 22:27 Hrafnhildur Halldórsdóttir telur að Sjonni Brink hafi verið að stríða þeim. „
Ég fór að gráta," segir Hrafnhildur Halldórsdóttir, sem kynnti Eurovison-keppnina í kvöld en áhorfendur gátu heyrt að hún var í miklu tilfinningalegu uppnámi þegar það var loksins tilkynnt að Ísland kæmist áfram í aðalkeppnina á laugardaginn í Dússeldorf. En það gekk á ýmsu hjá þessari þaulreyndu útvarpskonu en skyndilega féll hljóðið út vegna tæknilegra örðugleika í Þýskalandi. Hrafnhildur hafði hinsvegar ekki hugmynd um það og hélt áfram að lýsa keppninni úr þröngum klefa sínum í tónleikahöllinni. „Ég var bara ein í búrinu og var búin að tala og tala heillengi þegar íslensk kona úr hópnum kom kófsveitt inn til mín og sagði mér hver staðan væri," segir Hrafnhildur en hún hafði slökkt á farsímanum sínum áður en útsendingin hófst, því var ómögulegt fyrir RÚV að ná til hennar. Loksins lagaðist vandamálið en þá heyrðu áhorfendur í Hrafnhildi, hún hinsvegar heyrði ekki í myndstjórninni, þeirri sem lætur hana vita hvenær auglýsingar hefjast of svo framvegis. Hún þurfti því að vera í símasambandi við þá á sama tíma og hún var að lýsa keppninni.Hrafnhildi leið eins og Adolfi Inga þegar hann lýsir kappleikjum.„Ég fékk bara að reyna allan pakkann," segir Hrafnhildur sem er enn að ná sér eftir kvöldið. „Ég held að Sjonni hafi bara verið að stríða okkur," bætir hún við. Um keppnina segir Hrafnhildur að hún hefði aldrei misst trúna á laginu. „Ég vissi að við kæmumst áfram. En ég trúði því ekki að við yrðum í síðasta umslaginu í þriðja skiptið í röð," segir Hrafnhildur sem efaðist aldrei um að framlag Íslands myndi ekki skila sér í aðalkeppnina. „En stóru fréttirnar eru að Tyrkland komst ekki áfram. Það er í fyrsta skiptið sem það gerist. Eins með Armeníu," segir Hrafnhildur um kvöldið örlagaríka. Spurð hvernig henni líði núna svarar Hrafnhildur: „Ég hef aldrei upplifað jafn miklar tilfinningar. Mér verður hugsað til Adolfs Inga [Erlingssonar, sem lýsir oft kappleikjum af miklum tilfinningum. innskt. blm.]. Það er ekki venjulegt að lenda í svona löguðu." Hrafnhildur segir að héðan í frá sé allt bónus, eins og hún orðar það sjálf. Hún trúir því að strákarnir eigi eftir að mæta á sviðið á laugardaginn fullir af sjálfstrausti.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira