Fara á svig við kjarasamninga 27. maí 2011 08:00 Jón Steinsson, dósent í hagfræði við Columbia háskóla í Bandaríkjunum. „
Ef horft er á tölurnar virðist framlegð venjulega vera í kringum fimm milljarða en fara til dæmis upp í 25 milljarða árið 2009. Þetta gætu því verið allt að 20 milljarðar sem útgerðin er að bóka í vinnslunni í staðinn fyrir í veiðunum. Það eru þá nokkrir milljarðar sem sjómenn verða af á árinu 2009,“ segir Jón Steinsson, dósent í hagfræði við Columbia háskóla í Bandaríkjunum. Jón hefur skoðað samband fiskverðs og framlegðar í vinnslu á Íslandi og komist að þeirri niðurstöðu að flest bendi til að útgerðin hafi með því að selja afla á undirverði til tengdra aðila farið á svig við kjarasamninga sjómanna. „Ef að það væri samkeppni til staðar í vinnslunni, ætti ekki að verða til nokkur framlegð umfram það sem væri eðlilegur arður af fjárfestingum. Sérstaklega ætti ekki að vera samband milli framlegðar í vinnslu og verðs á fiski,“ segir Jón en bætir því við tölur Hagstofunnar bendi eindregið til þess að slíkt samband sé til staðar. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, neitaði að tjá sig um niðurstöðu Jóns og sagði þann ágæta mann ekki stunda fagleg vinnubrögð. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, segir þetta hins vegar einfaldlega rangt hjá Jóni. „Það er ekkert óeðlilegt við það að framlegð sveiflist milli ára. Um þessi verð gilda bara samningar þar sem viðeigandi þættir eru teknir inn í myndina. Mér finnst þetta í raun bara vera uppsláttur hjá honum. Hann fullyrðir fyrst og spyr svo og það er eins og hann skrifi þetta í pólitískum tilgangi,“ segir Sveinn. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir þetta hins vegar hafa verið ljóst í mörg ár. Verðmyndum á þessum mörkuðum sé einkar óeðlileg. “Verðlagsstofa skiptaverðs á að koma í veg fyrir að þetta gerist og það tókst svo sem fyrstu árin. Undanfarin ár hefur hún hins vegar reynst kolómöguleg og raunar efast ég um að sjómenn myndu finna fyrir því ef Verðlagsstofan væri einfaldlega lögð niður,” segir Sævar og bætir því við að það sé tími til kominn að einhver annar vekji máls á þessu.- mþl
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira