Þrýst á markvissari viðræður 18. janúar 2011 09:00 Innan SGS eru 19 aðildarfélög með um 53 þúsund félagsmenn. SGS er stærsta landssamband ASÍ. fréttablaðið/vilhelm
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins ákvað á fundi í gær að vísa kjaradeilu sambandsins við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar verði af ríkissáttasemjara. Er það von Starfsgreinasambandsins að það skili kjarasamningi aðila í höfn frekar fyrr en síðar. Björn Snæbjörnsson, formaður samninganefndar Starfsgreinasambandsins, segir að nú sé það sáttasemjara að stjórna áframhaldi viðræðna á milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins. „Framhaldið er í verkstjórn sáttasemjara. Eitthvað hefur þetta þokast en við viljum hraða þessu þar sem langur tími er síðan samningar voru lausir. Það er ekki þar með sagt að þetta komi bara einn, tveir og tíu," segir Björn. Rætt hefur verið um samræmda launastefnu á vinnumarkaði, eða að verkalýðshreyfingin fari með sameiginlega kröfugerð á hendur atvinnurekendum. Eins og Fréttablaðið skýrði frá í gær telja forsvarsmenn einstakra verkalýðsfélaga að slíkt komi ekki til greina. Samkvæmt heimildum blaðsins eru félög tilbúin til að draga samningsumboð Starfsgreinasambandsins til baka verði slík leið valin. Björn segir að þessi hugmynd hafi verið rædd á fundinum í gær en ákveðið hafi verið að hvert og eitt félag ræði þetta í sínum röðum áður en ákvörðun verður tekin. Samninganefndin fundar aftur á föstudaginn þar sem málið verður tekið fyrir að nýju.- shá
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira