Lög Jóhanns G. gætu verið spiluð áfram á Bylgjunni 15. febrúar 2011 14:30 Jóhann G. Jóhannsson. Tónlistarmaðurinn hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín.
Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín. Hann er ósáttur við tónlistarstefnu stöðvarinnar. Framkvæmdastjóri dagskrársviðs er undrandi á þessu útspili tónlistarmannsins. „Það er búin að vera lengi viðverandi óánægja hjá tónlistarmönnum. Ég skrifaði grein í blöðin 2006 um þörf á að það kæmi upp önnur útvarpsstöð, hreinlega vegna þess að það er svo lítið spilað af íslenskri tónlist. Tónlistarmenn eru að gera frábæra hluti en jafnvel metnaðarfyllsta tónlistin fær ekki kynningu," segir Jóhann G. Jóhannsson. Hann hefur bannað Bylgjunni að spila lögin sín í mótmælaskyni yfir spilunarstefnu stöðvarinnar, sem hann segir einhæfa. Þetta eru lög á borð við Don"t Try To Fool Me, Dagar og nætur, Eina ósk, Hvers vegna varst"ekki kyrr og Traustur vinur. Jóhann var óánægður þegar síðasta sólóplata hans frá 2009 þótti ekki vera á pari hjá tónlistarráði Bylgjunnar, sem samanstendur af starfsfólki stöðvarinnar. Þá gagnrýndi hann Bylgjuna í viðtali við Fréttablaðið fyrir að hleypa lagi sínu „Taktu þér tíma" ekki í gegn og gekk svo langt að segja að hann hefði verið niðurlægður af tónlistarráðinu. Jóhann vill breyta þeim farvegi sem íslensk tónlist þarf að ferðast um til að eiga möguleika á að komast í loftið. Hann fagnar því að Rás 2 hafi ákveðið að framvegis verði helmingur laganna sem hún spilar íslensk. Jóhann vísar í hlustendakönnun á vegum Félags tónskálda og textahöfunda, FTT, frá síðasta sumri sem hefur ekki verið birt opinberlega. Þar kom í ljós að aðeins 14,4% svarenda voru ánægð með umfjöllun Bylgjunnar um íslenska tónlist á meðan hlutfall Rásar 2 var 50,5%. Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla, segist vera undrandi á þessari „einhliða afstöðu Jóhanns G". „Þetta hefur ekki bara áhrif á Bylgjuna, heldur einnig á alla þá sem syngja og flytja tónlist hans auk útgefenda," segir hann. Pálmi útilokar ekki að Bylgjan haldi áfram að spila lög Jóhanns þrátt fyrir bannið. „Jóhann G. hefur leigt höfundarréttinn að sínum lögum til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF), sem við erum með samning við. Því getum við spilað lögin hans áfram," segir hann. „En það gæti þó vel farið svo að við förum að tilmælum hans." Að sögn Pálma er hlutfall íslenskrar tónlistar á Bylgjunni hátt í 40% dag hvern. „Við erum í mjög góðum og reglulegum samskiptum við forkólfa tónlistargeirans og viljum hag íslenskrar tónlistar sem mestan. Það er óskemmtilegt að eiga í samskiptum sem þessum við Jóhann G. á opinberum vettvangi en hann er mikils metinn og einn mest spilaði listamaður Bylgjunnar. Mér persónulega finnst þetta illa ígrundað útspil af hans hálfu." freyr@frettabladid.is
Tengdar fréttir Bannar Bylgjunni að spila tónlist sína Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur ákveðið að banna útvarpsstöðinni Bylgjunni að spila tónlist frá og með þriðjudeginum í næstu viku. Jóhann segir að höfundaréttur sé eignaréttur og því geti höfundur tekið ákvörðun um hvort hann leyfi afnot af verkum sínum eða ekki. 14. febrúar 2011 12:17 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Bannar Bylgjunni að spila tónlist sína Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur ákveðið að banna útvarpsstöðinni Bylgjunni að spila tónlist frá og með þriðjudeginum í næstu viku. Jóhann segir að höfundaréttur sé eignaréttur og því geti höfundur tekið ákvörðun um hvort hann leyfi afnot af verkum sínum eða ekki. 14. febrúar 2011 12:17