Stærri skip sem stoppa lengur 17. janúar 2011 02:30
Alls eru 63 skemmtiferðaskip nú þegar bókuð um Faxaflóahafnir næsta sumar, á tímabilinu maí til loka september. Í fyrra voru skipin 73. Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna reiknar ekki með að fjöldi skipa í ár nái þeirri tölu þó einhverjar pantanir eigi eftir að skila sér. Farþegafjöldi verði þó svipaður. „Við eigum von á færri skipum en stærri. Farþegafjöldinn er áætlaður um 68.000 manns í ár en var 70.000 í fyrra.“ Auk þess að skipin eru að stækka segir Ágúst ástæðu færri bókana þetta árið um Faxaflóahafnir geta meðal annars verið að ferðir dreifist öðruvísi á hafnir landsins. Útlit fyrir árið 2012 sé gott. „Nú þegar hafa yfir 40 skip bókað sig fyrir 2012. Eins er sú breyting að verða síðustu ár að skipin stoppa yfir nótt og fara á fleiri hafnir á landinu. Farþegarnir skilja þá eftir sig meira af peningum.“ Stærsta skipið sem kom hingað á síðast ári, Crown Princess, var 113.651 lestir, með á fjórða þúsund farþega innanborðs og 1.200 manna áhöfn. Í sumar er von á enn stærra skipi, Azura, sem er 116.000 lestir að stærð. - rat
Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira