Niðurfelling lána getur numið 15 til 30 milljónum 17. janúar 2011 03:30 Árni Páll Árnason.
Samningar um síðasta atriði aðgerða í þágu skuldsettra heimila tókust á laugardag þegar lánveitendur á íbúðamarkaði komu sér saman um verklag við aðlögun fasteignalána að verðmæti fasteignar. Með því eru öll boðuð úrræði til lausnar skuldavanda heimilanna komin upp á borðið og bjóðast skuldurum strax í dag. Samkvæmt þessu nýjasta samkomulagi býðst eigendum heimila, þar sem áhvílandi veðskuldir eru umfram 110 prósent af verðmæti eignarinnar, að færa skuld sína niður að því marki, að uppfylltum ýmsum skilyrðum. Niðurfelling lántakenda getur numið allt að 15 milljónum fyrir einstaklinga og 30 milljónum fyrir einstæða foreldra og sambýlisfólk. Niðurfærsla upp að fjórum milljónum fyrir einstaklinga og sjö milljónum fyrir einstæða foreldra og sambýlisfólk er óháð tekjum, utan þeirra lífeyrissjóðslána sem miða við að greiðslubyrði af umræddum lánum sé ekki lægri en sem svarar 18 prósentum af heildartekjum umsækjenda. Samkvæmt yfirlýsingu stjórnvalda og lánveitenda frá 3. desember átti þessi valkostur að vera til reiðu þann 15. desember og er því mánuði á eftir áætlun. „Þetta hefur tekið nokkurn tíma því að menn voru að reyna að útfæra þetta þannig að það nýttist fleirum er ráðgert var í upphafi og það hefur tekist," segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í samtali við Fréttablaðið. Árni Páll segir þó ánægjulegt að búið sé að klára úrræðin sem eru í boði. „Nú er um að gera fyrir skuldara að snúa sér beint til þeirra sem eru aftast í veðröðinni, en þeir eiga að halda utan um málin gagnvart öðrum lánveitendum." Aðspurður segir Árni að ekki verði boðið upp á fleiri úrræði að svo stöddu. „Við höfum verið að ganga að stjórnarskrárvörðum eignarrétti banka og lífeyrissjóða og það er ekkert frekara svigrúm. Við höfum kallað eftir því að menn núvirði kröfur og horfist í augu við það sem er glatað í þeim og það er gert með þessum úrræðum. Við höfum viljað að svigrúm fjármálastofnana sé nýtt til fulls og teljum að það sé gert með þessu. Nú skiptir hins vegar mestu máli að ganga eftir því að málin gangi hratt og örugglega svo að þessar aðgerðir skili sér í raun en ekki bara á pappírnum." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Fleiri fréttir Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Sjá meira