Stofnun Palestínuríkis ef til vill ekki tímabær Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. október 2011 12:02 Bjarni Benediktsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd. Mynd/ Anton. „
Ég vonast til þess a nefndin gefi sér góðan tíma til að vinna í þessu þingmáli,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd Alþingis. Nefndin ræddi í morgun þingsályktunartillögu utanríkisráðherra þess efnis að Ísland viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki. Bjarni segir ekki tímabært að spá fyrir um hver afdrif málsins verða. Það sé þó enginn ágreiningur um það að stefna beri að stofnun palestínsks ríkis. „Fyrir mér hefur spurningin verið sú hvort að það væri skynsamlegt og tímabært við núverandi aðstæður,“ segir Bjarni. Það eru nokkur atriði sem þarf að horfa til í því sambandi. Staða flóttamála á þessu svæði er sérstakt áhyggjuefni, nú þegar það liggur fyrir að hartnær helmingur sem mun búa í þessu nýja ríki verða ekki ríkisborgarar. Þetta er eitt vandamál af mörgum sem maður hefði viljað sjá þessa tvo aðila, sem hafa átt í þessum viðræðum lengi, finna lausn á með stuðningi frá alþjóðasamfélaginu. Annað atriðið sé það hvort raunhæft sé að miða við landamæri frá 1967. „Ísraelsmenn hafa ítrekað lýst því yfir að það sé óraunhæft að þeir geti varið þjóð sína miðað við þau landamæri,“ segir Bjarni. Jafnframt verði að hafa í huga að þegar rætt sé um sjálfstætt ríki Palestínu og átökin sem hafa verið fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarna áratugi verði að taka það með í reikninginn að átökin hafi fyrst og fremst snúist um tilverurétt Ísraelsríkis. Átökin hafi ekki snúist um það hvort stofna ætti ríki Palestínu. Það hefur verið tregða arabaþjóðanna allt um kring og á þessu svæði til þess að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis sem hefur valdið hvað mestri spennu,“ segir Bjarni. Bjarni segir að öll þessi atriði verði að taka með í umræðuna. „Ég kalla bara eftir málefnalegri og yfirvegaðri umræðu um þetta viðkvæma mál,“ segir Bjarni.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira