Innlent

Þorsteinn: "Kæran hreinn og klár sóðaskapur"

Þorsteinn við þingfestingu málsins.
Þorsteinn við þingfestingu málsins.
„Vond," sagði Þorsteinn Húnbogason, fyrrverandi sambýlismaður Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, þegar hann var spurður að því hvernig tilfinning það væri að ganga inn í dómsal. Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum hófst rétt eftir klukkan eitt í dag en Þorsteinn er ákærður fyrir brot á fjarskiptalögum.

Við upphaf aðalmeðferðarinnar í dag sagði saksóknari að hann muni ekki leiða syni Þorsteins og Sivjar sem vitni í málinu á þeirri forsendu að þeir hafi skorast undan vitnaskyldu. Þorsteinn neitaði sök en játaði að hafa sett búnaðinn í bílinn.

„Ég vil andmæla því að þetta sé staðsetningarbúnaður heldur er þetta ökuriti. Þetta er sett sem ökuriti. Ég tók þetta á leigu til að fylgjast með og fá aksturseinkunn á son minn sem var að fá bílpróf. Það var tilgangurinn ekki að staðsetja fólk. Það er bara rangt orðalag að kalla þetta staðsetningarbúnað," sagði hann og undirstrikaði að hann hefði tekið búnaðinn á leigu að hann hafi verið ökuriti.

Hann sagði að tilgangurinn hafi ekki verið að fylgjast með ferðum Sivjar, enda hafi hann ekki vitað að hægt væri að skoða staðsetningar bifreiðarinnar fyrr en „öll lætin" byrjuðu síðar á árinu 2010. Upphaflega var búnaðurinn settur í bíl af starfsmönnum fyrirtækis sem sérhæfir sig í því. Hann hafi sjálfur fært hann svo yfir í annan bíl sem sonur þeirra hafi notað í æfingaakstri.

Þorsteinn sagði að Siv væri ekki umráðamaður bílsins og ætti hann ekki. Þorsteinn lýsti því þegar lögreglan kom á heimili hans til að boða hann í skýrslutöku. Hann hafi verið í símanum og farið svo til dyra. „Þeir hafa hótanir um það að ef ég komi ekki með viljugur niðureftir, þá muni þeir handtaka mig. Ef þeir verði ekki ánægðir með niðurstöðu yfirheyrslunnar muni þeir framkvæma húsleit. Eftir það elta þeir mig um allt hús og ég fæ leyfi til að hringja í lögmann og hann segir mér að henda þeim út. Þeir hringja svo í víkingarsveitarbíl og ég sagði við lögmann minn að ég ætli ekki að hafa lögregluleikrit á planinu hjá mér og færi bara með þeim."

Þorsteinn sagði að kæran, sem Siv lagði fram fyrir lögreglu, væri „hreinn og klár sóðaskapur." Hann lýsir svo ferð sinni í Öskjuhlíðina með félaga sínum. „Kunningi minn var að fara bjóða sig fram til stjórnar í stangveiðifélaginu og hann var að suða í mér að bjóða mig fram í fulltrúaráð," sagði hann og sagði svo frá því næst hvernig hann hafi skyndilega séð Siv í Öskjuhlíðinni vera að „pukrast út í horni með manni sem er hennar vinur og ástmaður í dag," sagði hann og benti á að maðurinn væri háttsettur lögreglumaður og bætti við: „Framkoma lögreglunnar í þessu mál ber vott af því."


Tengdar fréttir

Aðalmeðferð í njósnamálinu í dag

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Þorsteini Húnbogasyni, fyrrum sambýlismanni Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns, fer fram eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er grunaður um að hafa njósnað um Siv með því að hafa komið ökurita fyrir í bifreið hennar. Þau voru í sambúið í tuttugu og sex ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×