Búið að ráðstafa öllu nema 7,5 milljónum 10. október 2011 06:00 Búið er að ráðstafa um sex milljónum af Mottumarsfé í rannsóknir á þessu ári. Mynd/fréttablaðið/gva
Rúmlega 35 milljónir af þeim 40 sem heitið var hafa skilað sér inn til Krabbameinsfélagsins vegna Mottumars. Áheit á netinu áttu að skila inn tæpum 30 milljónum og fyrirtæki áttu að skila inn um 10 milljónum. Enn vantar um þrjár milljónir af áheitum af netinu og um tvær milljónir frá fyrirtækjum. Þeim sem heita á einstaklinga vegna Mottumars ber engin lagaleg skylda til þess að greiða inn til félagsins. Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, segir að nú sé verið að leggja lokahönd á bókhaldið vegna Mottumars og félagið sé að reyna að ýta við þeim sem eigi eftir að borga. Búið er að ráðstafa stærsta hluta fjármagnsins og er stjórn Krabbameinsfélagsins nú að fara yfir eftirstöðvarnar, að sögn Ragnheiðar. Það sem er óráðstafað af fénu eru 7,5 milljónir. „Við höfum ráðstafað þessu í fræðslu og ýmiss konar forvarnir, meðal annars með því að efla heimasíðuna,“ segir hún. „Þetta er að skila mjög miklum árangri, þess vegna erum við tilbúin að halda áfram. Það var mikið um að karlmenn leituðu til heilsuþjónustunnar á síðasta ári og þessu, og fleiri leituðu til ráðgjafarþjónustunnar.“ Það sem af er ári hefur um sex milljónum verið ráðstafað í rannsóknarstarf, þar með talið í auglýsingaherferð tengda könnun á karlmönnum og krabbameini. Annar kostnaður fyrir átakið, innanhússtörf, stjórnun átaksins og skipulag, starf Ragnheiðar og markaðsstjórans, er í kringum fimm milljónir króna.- sv
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Fleiri fréttir Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Sjá meira