Geta fryst sóknargjöld berist reikningar ekki 7. janúar 2011 06:30 Fjármálastjóri Biskupsstofu segir að sameiningar sókna séu ekki á dagskrá. Frumkvæðið eigi að koma frá sóknunum sjálfum. Fréttablaðið/gva
Kirkjuráð Þjóðkirkjunnar getur ákveðið að svipta sóknir tekjum sínum ef þær skila ekki ársreikningum. Reglur þessa efnis tóku gildi um áramót. Sóknargjöldin eru þá lögð inn á biðreikning þar til reikningnum hefur verið skilað. Ríkisendurskoðun birti í gær yfirlit yfir ársreikninga sókna. Frestur þeirra til að skila reikningum til Biskupsstofu, sem síðan á að skila þeim áfram til Ríkisendurskoðunar, rennur út 1. júní ár hvert. Í yfirlitinu kemur hins vegar fram að sautján sóknir af 273 hafa enn ekki skilað reikningum og fimm til viðbótar skiluðu svo ófullkomnum gögnum að þau voru ónothæf. „Það er gengið eftir þessum skilum með bréfum og símtölum en það hefur ekki dugað í öllum tilfellum þótt langflestar sóknir skili auðvitað eins og vera ber,“ segir Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu. Þess vegna hafi kirkjuþing í nóvember ákveðið að setja fyrrgreinda reglu. Ríkisendurskoðun mælir með því í skýrslu sinni „að kirkjuþing kanni hvort tímabært sé að það beiti sér fyrir frekari sameiningu sókna í hagræðingarskyni“. Sigríður Dögg segir að það sé ekki stefna kirkjuþings. „Það hefur verið litið þannig á að frumkvæðið að því eigi að koma frá sóknunum sjálfum,“ segir hún. Hins vegar hafi kirkjuþing ákveðið að stuðla að frekara samstarfi sókna, einkum með það í huga að tryggja að þjónusta sem smærri sóknir geta ekki haldið úti standi þá til boða í þeim stærri. Slíkt samstarf kunni að leiða til sameininga síðar meir. Sigríður Dögg segir að af 273 sóknum séu 125 með færri en 100 sóknarbörn yfir sextán ára aldri, sem greiði sóknargjöld, og þar af 70 með færri en fimmtíu gjaldendur. „Svona fámennar sóknir eru ekki hagkvæmar rekstrareiningar,“ segir hún. Þá kemur fram í yfirliti Ríkisendurskoðunar að sóknir landsins skuldi samtals um fjóra milljarða króna. Sigríður bendir á að eignir á móti séu metnar á um 24 milljarða. Hlutfall skulda á móti eignum sé því um sextán prósent. „Ég held að það sé ekkert óeðlilegt hlutfall,“ segir hún. Hins vegar standi margar sóknir illa fjárhagslega. „Það er verulega farið að kreppa að hjá mörgum sóknum, sérstaklega fámennum, þar sem sóknargjöldin duga vart fyrir daglegri starfsemi eins og að greiða organista fyrir að spila í messum. Svo eru margar sóknir sem eru skuldugar og þá bitnar það auðvitað á starfinu.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Læti í miðbænum og í veðrinu Innlent Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Innlent Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Innlent Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Erlent Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Erlent Fleiri fréttir Dæmigerðar aðstæður „fyrir það þegar fólk verður úti“ Verbúðarstemning á Hjalteyri og nóg af ástarpungum fyrir alla Mannmergð vildi sjá fyrsta konunglega breska gestinn Óveður í Eyjum og verbúðarstemning á Hjalteyri Hnífurinn reyndist grilltangir „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Læti í miðbænum og í veðrinu Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Opnun Samverks á Hellu fagnað „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Íbúar við Þjórsá æfir og þrumuveður um Versló Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Ný verðskrá kindakjöts vonbrigði fyrir sauðfjárbændur Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Fundu engan hvítabjörn Hraunbreiðan þykknar og líkur á framhlaupum aukast „Hann skilar algjörlega auðu í náttúruverndarmálum“ Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Skýrara hvar besta veðrið verður um helgina Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Trump hækkar tolla á Ísland og viðbúnaður á Þjóðhátíð Þyrlan farin vestur í hvítabjarnareftirlit Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Sjá meira