Umfangsmesta leit síðari ára 12. nóvember 2011 20:00
Sænski ferðamaðurinn sem leitað hafði verið á Sólheimajökli í tæpa tvo sólarhringa fannst látinn rétt fyrir hádegi í dag. Hann var ofan í jökulsprungu en ekki er hægt að fullyrða hvort hann féll ofan í sprunguna eða fór þar ofan í til að leita skjóls. Um var að ræða eina umfangsmestu leit björgunarsveita á Íslandi hin síðari ár. Yfir 300 björgunarsveitamenn tóku þátt í leitinni í morgun, þar af voru um um 80 manns á jöklinum sjálfum. Hinn látni hét Daniel Markus Hoij. Hann hringdi í neyðarlínuna á miðvikudagskvöldið og bað um hjálp en gat ekki gefið upp staðsetningu sína. Daníel fannst í dag á svæði sem björgunarsveitarmenn höfðu farið yfir á fimmtudagskvöld í miklu myrkri, án þess að finna hann. Bróðir Daníels kom til landsins í gær. Hann bar hann kennsl á bróður sinn eftir að hann fannst í dag. Ekki liggur fyrir hvenær Daniel lést en talið er að hann hafi dáið úr kulda. Hann hafði búist til ferðar í gönguskóm, göngubuxum og jakka. Hilmar Már Aðalsteinsson tók þátt í leitinni frá upphafi og var í hópnum sem að lokum fann Daníel. Ég myndi segja að hann hafi verið þokkalega búinn, hann var reyndar ekki með mannbrodda eins og hann hefði átt að vera. En þetta undirstrikar að fólk án reynslu á ekki að fara upp á jökul án leiðsögumanna," segir Hilmar Már. Leitin var á tíðum mjög erfið og krefjandi. „Fyrstu nóttina komumst við í skála Útivistar, kveiktum upp í honum og lögðum okkur í 45 mínútum og nærðumst. Einn af okkur örmagnaðist og þurfti aðstoð við að koma niður af jöklinum," segir Hilmar Már.
Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Fleiri fréttir „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Sjá meira