Húsvíkingar biðja um heilindi frá Landsvirkjun 3. janúar 2011 11:59 Frá Húsavík. MYND/KK
Byggðaráð Norðurþings harmar að Landsvirkjun skyldi ekki upplýsa samstarfsaðila um orkunýtingu í Þingeyjarsýslum um áform um metanólverksmiðju við Kröflu og krefst þess að fyrirtækið upplýsi hvaða áhrif þetta geti haft á álver á Bakka. Ráðamenn á Húsavík fréttu það í gegnum fjölmiðla að Landsvirkjun hefði undirritað viljayfirlýsingu við Carbon Recycling um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju við Kröflu. Þar er mönnum greinilega brugðið enda blasir við að ráðstöfun umtalsverðrar raforku til metanólverksmiðju getur gert áform um álver á Bakka að engu. Byggðaráð Norðurþings bókaði um málið á síðasta fundi sínum fyrir áramót og þar er minnt á að fyrir ári hafi iðnaðarráðuneytið undirritað viljayfirlýsingu við sveitarfélögin í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem meðal annars var kveðið á um verkefnisstjórn. Í bókun byggðaráðs Norðurþings segir að eitt af grundvallar atriðum þessarar vinnu hafi verið samstarf og samvinna með ríkisfyrirtækinu Landsvirkjun, - samstarf sem nauðsynlegt sé að sé byggt á heilindum og góðu upplýsingaflæði aðila á milli. Byggðaráð Norðurþings kveðst fagna því að verið sé að skoða möguleika á nýtingu jarðvarma við Kröfluvirkjun en harmar jafnframt þau vinnubrögð Landsvirkjunar, að samstarfsaðilar um orkunýtingu í Þingeyjarsýslum og verkefnisstjórn hafi ekki verið upplýst um stöðu mála. Að auki gerir Byggðaráðið þá kröfu að fá upplýsingar um hvort framangreindar fyrirætlanir hafi áhrif á önnur verkefni sem unnið sé að í Þingeyjarsýslum. Það er von byggðaráðs Norðurþings, segir í bókuninni, að vinnubrögð af hálfu ríkisfyrirtækisins Landsvirkjunar verði tekin til endurskoðunar, enda hafi verið stefnt að samstarfi marga áratugi fram í tímann. Bókun byggðaráðs má sjá hér.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Fleiri fréttir Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Sjá meira