Landssöfnun til styrktar geðdeildum 5. október 2011 10:49 Vigdís og Páll máta brospinnana.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, tók á dögunum á móti fyrsta Brospinnanum úr hendi Páls Matthíassonar, framkvæmdastjóra geðsviðs Landspítalans. Um helgina verður landssöfnun sem skipulögð er starfsfólki Landspítalans en sölu á Brospinnum er ætlað að bæta aðbúnað á geðdeildum spítalans. Salan fer fram dagana 7. til 10. október næstkomandi. Vigdís er verndari landssöfnunarinnar. „Forsagan er ótrúleg sem og framvindan,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum átaksins. „Fyrir rúmu ári var starfsmaður á geðdeild að reyna létta lund mikið veiks sjúklings. Starfsmaðurinn teiknaði, klippti og límdi broskarl á tunguspaða sem hann notaði sem pinna og skildi eftir á náttborði sjúklingsins. Þannig kviknaði hugmyndin að Brospinnanum og stofnað var félagið Brospinnar - Áhugahópur um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítalans.“ Þá segir að geðraskanir tengist einni af hverjum þremur fjölskyldum á Íslandi. „Geðraskanir geta verið erfiðir sjúkdómar og margir þurfa að leggjast inn á geðdeildir Landspítalans vegna þeirra og fá þar þjónustu til lengri eða skemmri tíma. Þjónusta starfsfólksins er góð en aðbúnaðurinn hefur því miður ekki verið endurnýjaður sem skyldi og ljóst að svo mun ekki verða í náinni framtíð, miðað við fjárhag ríkisins. Geðdeildir Landsspítalans eru orðnar áratuga gamlar og nauðsynlegt að endurnýja bæði innréttingar og húsbúnað.“ Fjórar tegundir Brospinna verða í sölu, konubros, karlabros, strákabros og stelpubros en hvert bros kostar aðeins 1000 kr. og allur ágóði fer í að bæta aðbúnað á þeim níu legudeildum sem heyra undir geðsvið Landspítalans.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira