Hinsegin vetrarnætur 5. október 2011 23:15 Birna Hrönn og Eva María eiga saman ferðaskrifstofuna Pink Iceland. Eva segir íslenskum hinsegin pörum eðlilegt að ganga hönd í hönd um göturnar, en pör frá lokaðri þjóðfélögum bresti í grát þegar þau geta gert hið sama hér. Fréttablaðið/Valli „
Þegar hinsegin gestir koma að utan vilja Íslendingar sjálfkrafa vera með. Ný andlit hafa aðdráttarafl og spennandi fyrir lítið samfélag hinsegin fólks á Íslandi að fá hinsegin ferðamenn til landsins,“ segir Eva María Þórarinsdóttir Lange, sem ásamt unnustu sinni, Birnu Hrönn Björnsdóttur, stendur fyrir vetrarhátíðinni Rainbow Reykjavík dagana 16. til 19. febrúar næstkomandi. Hátíðin er samstarfsverkefni Icelandair, ferðaskrifstofunnar Pink Iceland, Icelandair Hotels, Höfuðborgarstofu og Reykjavík Excursions. „Hugmyndin að hátíðinni kviknaði hjá þýsku strákapari. Strákarnir urðu strandaglópar í Reykjavík þegar brast á með stórhríð og vonskuveðri í febrúar. Þeim þótti upplifunin svo dásamleg að næsta ómögulegt væri annað en að heimurinn allur vissi af þessum spennandi vetraráfangastað,“ segir Eva María um dauðasta ferðamannatíma ársins, hingað til. „Febrúar er töfrandi mánuður með norðurljósadansi, sérkennilegri birtu og vetrardýrð, en Íslendingar hafa verið óþarflega feimnir gagnvart eigin veðri og skammdegi. Við skynjum strax að fólk er ánægt með að bjóðast ferð til Íslands á þessum árstíma og viðbrögðin eru strax mikil,“ upplýsir Eva María um viðtökurnar. Á dagskrá Rainbow Reykjavík eru veislur, norðurljósaferð, hinsegin söguganga, Gullni hringurinn með „Gaysi“ og stórtónleikar í Hörpu þar sem heimsfrægir hinsegin listamenn stíga á stokk. Eva María, sem einnig er framkvæmdastjóri Gay Pride, segir vetrarhátíðina ekki setta til höfuðs Gay Pride heldur hreina viðbót í flóru hátíðahalds hinsegin fólks. „Gay Pride er baráttuhátíð hinsegin fólks þar sem stór hluti þjóðarinnar kemur saman yfir hásumarið, en Rainbow Reykjavík er lokaðri og mun minni viðburður sem almenningur hefur ekki aðgang að.“ Á vetrarhátíðinni býðst gestum sérstakur brúðkaupspakki með framlengdri Íslandsdvöl og giftingu frammi fyrir Guði og mönnum. thordis@frettabladid.is
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira