Ósýnilegi stimpillinn "Dópisti“ 5. október 2011 19:09
Faðir Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur krefst þess að rannsókn á andláti hennar verði haldið áfram. Sjálfur hefur hann aflað upplýsinga og sent ný sönnunargögn til ríkissaksóknara máli sínu til stuðnings. Jóhannesi Kr. Kristjánssyni var tilkynnt fyrir mánuði að rannsókn á andláti dóttur hans, Sigrúnar Mjallar ssem lést af banvænum eiturlyfjaskammti í júní á síðasta ári, hefði verið hætt. „Ég sætti mig ekki við það og fór sjálfur að skoða málið og setti fram fimm atriði sem að mér finnst skipta miklu máli í rannsókninni og hef sent það til ríkissaksóknara. Ég hef líka borið það undir lögmenn og fólk sem hefur starfað í réttarvörslukerfinu í langan tíma, sem eru allir sammála um að þau atriði sem ég nefni í mínu bréfi til saksóknara séu mjög mikilvæg í rannsókninni," segir Jóhannes. Þau atriði sem Jóhannes nefnir eru nýjar upplýsingar sem hann aflaði sjálfur, en vegna rannsóknarhagsmuna getur hann ekki gefið þær upp. Hann gagnrýnir lögreglu fyrir að hafa ekki unnið vinnu sína sem skyldi og hefur það reynst honum þrautin þyngri að komast til botns í málinu á eigin spýtur „Það er bara það erfiðasta sem maður getur gert, en jafnframt fyrst að niðurstaða lögreglunnar er þessi, að þeir telja ekki ástæðu til að halda rannsókninni áfram, þá sé ég mig knúinn til þess að gera það. Bæði það að ég vil halda virðingu dóttur minnar á lofti, mér finnst hún eiga að njóta meiri virðingar heldur en það að rannsókninni sé hætt, og líka það að ég vil að þetta hafi varnaðaráhrif út í samfélagið." Þetta telur hann mikilvægt þar sem fleiri séu ósáttir við það hvernig lögregla rannsakar andlát fíkla. „Það virðist vera að skýrslurnar séu stimplaðar með stimplinum ósýnilega, dópisti, og þá sé það næg ástæða til þess að rannsaka málið ekki til hlítar," segir hann að lokum.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira