Innlent

Jólageitin risin á fætur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Notast var við krana til að hjálpa jólageitinni á fætur.
Notast var við krana til að hjálpa jólageitinni á fætur. mynd/ Ikea.
Sænska jólageitin við Ikea er risin á fætur aftur með aðstoð kranabíls eftir óvæntan skell sem hún fékk í rokinu aðfaranótt þriðjudagsins. Hún hefur verið kirfilega fest á sinn stað í Kauptúninu og miklar vonir eru bundnar við það að hún standi af sér það óveður sem hugsanlega kann að koma á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×