Innlent

Samverustundir í Hafnarfirði

Boðað hefur verið til samverustunda í Hafnarfirði í kvöld vegna sviplegs fráfalls karlmanns á fertugsaldri sem lést í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Samverustundirnar verða tvær, hin fyrri hefst klukkan sjö í Kaplakrika og önnur verður haldin klukkan níu í kvöld í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.

Þá hefur leik FH og Hauka sem fram átti að fara í Kaplakrika á morgun verið frestað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×