Úrræðum fyrir börnin ábótavant 8. mars 2011 06:00 bugl Fimm geðlæknar á BUGL gagnrýna þá umræðu sem hefur verið um börn með ADHD og segja úrræði skorta.
Börn með ADHD verða oft á tíðum fyrir fordómum og dregið hefur úr stuðningsúrræðum innan skólanna fyrir börn með hegðunar- og þroskafrávik. Þetta er mat fimm barna- og unglingageðlækna á BUGL, sem Læknablaðið greinir frá. Á málþingi Læknadaga í síðasta mánuði fór fram umræða um ADHD. Þar kom meðal annars fram að ADHD sé í mörgum tilvikum óþekkt og að sumir kennarar heimti greiningu á uppivöðslusama drengi sem fái ekki útrás fyrir hreyfiþörf sína í skólanum. Að mati geðlæknanna Gísla Baldurssonar, Bertrands Lauth, Helga Garðarssonar, Dagbjartar Sigurðardóttur og Guðrúnar B. Guðmundsdóttur var sú umræða villandi og eru þau ósátt við að blandað sé saman málefnum barna og fullorðinna þegar um ADHD er að ræða. Guðrún B. Guðmundsdóttir segir langflesta foreldra ekki vilja setja börnin sín á lyf. Allt að fimm prósent barna séu mögulega með ADHD og nauðsynlegt sé að finna betri úrræði fyrir þau í skólum. „Börnin passa kannski ekkert inn í hið hefðbundna form skólakerfanna. Það væri óskandi að það væru fleiri úrræði og meiri möguleikar á því að setja börnin í minni hópa,“ segir Guðrún. - sv
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Bíll valt eftir aftanákeyrslu Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Fleiri fréttir Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent