Hjartveiku börnin fá ekki borgað Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. janúar 2011 21:33 Björgólfur Guðmundsson var stjórnarformaður Landsbankans þegar samningurinn var gerður.
Máli Styrktarsjóðs hjartveikra barna gegn Landsbankanum og Landsvaka var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir jól. Styrktarsjóðurinn stefndi Landsbankanum og dótturfélagi hans Landsvaka, sem sér um rekstur verðbréfa- og fjárfestingasjóða, haustið 2009. Ástæðan er sú að við fall Landsbankans var sjóðum Landsvaka slitið og við það rýrnaði eign Styrktarsjóðs hjartveikra barna um 21 milljón. Í stefnunni krafðist sjóðurinn því að Landsbankinn og Landsvaki bættu félaginu upp þá fjármuni sem glötuðust. Héraðsdómari komst að þeirri niðurstöðu að málið hefði verið vanreifað og vísaði máli sínu til stuðnings til úrskurðar Hæstaréttar sem hafði áður vísað málum einstaklinga gegn Landsvaka og Landsbankanum frá dómi. Jóhann Hafstein lögmaður hjá Ergo lögmönnum, sem hefur rekið mál Styrktarsjóðs hjartveikra barna, er ósáttur við úrskurðinn. Hann segir málin sem Hæstiréttur úrskurðaði í vera eðlisólík máli Styrktarsjóðs hjartveikra barna. Jóhann segir að mál Styrktarsjóðs hjartveikra barna snúist um það hvort Landsbankinn hafi brotið eignastýringasamning sem gerður var við Styrktarsjóðinn með því að hafa peningamarkaðssjóði Landsvaka inni í eignasafni Styrktarsjóðsins. Hin málin snúist hins vegar um það hvort Landsvaki hafi fjárfest í samræmi við heimildir og hvort markaðssetning peningamarkaðssjóðsins hafi verið rétt. Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur hefur verið kærður til Hæstaréttar.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Sjá meira