Þriggja ára fangelsisdómi snúið við í Hæstarétti Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. september 2011 16:38
Óðinn Freyr Valgeirsson, sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi fyrr á árinu í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir grófa líkamsárás, var sýknaður af ákærunni í Hæstarétti í dag. Óðinn var ákærður fyrir að hafa ráðist á sextán ára gamla stúlku á göngustíg í Laugardal í október í fyrra, slegið hana ítrekað með hörðu áhaldi í höfuð og tekið hana hálstaki og þrengt að þar til hún missti meðvitund. Þegar málið var til meðferðar fyrir héraðsdómi hafði einn dómari fjölskipaðs dóms skilað sératkvæði þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri Óðinn. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að ágallar á skýrslutökum lögreglu af systur Óðins væru þess eðlis að ekki væri hægt að líta til skýrslnanna við úrlausn málsins. Hún hafði hvorki verið upplýst með fullnægjandi hætti um réttarstöðu sína sem vitnis né um það hverjir myndu fá aðgang að upptökum af skýrslutökunum. Einnig var fundið að því að ekki hefði farið fram rannsókn á erfðaefni á blóðsýnum sem tekin voru á vettvangi árásarinnar, myndir af áverkum stelpunnar hefðu ekki verið í gögnum málsins og að skort hefði greinargóðar lýsingar á hæð og útliti Óðins og árásarþolans. Óðinn hafði sjálfur játað fyrir lögreglu að hafa framið þann verknað sem hann var ákærður fyrir. Fyrir héraðsdómi bar Óðinn aftur á móti að hann hefði ranglega játað á sig sök við umrædda skýrslutöku. Skýrsla Óðins hjá lögreglu þótti hafa verið óljós og ruglingsleg og ekki nema að hluta í samræmi við annað sem fyrir lá í málinu. Því varð sakfelling ekki reist á henni einni sér. Þrátt fyrir að framburður vitna kynni að styðja að Óðinn hefði ráðist að þolandann nægði sá framburður einn og sér ekki til sakfellis gegn eindreginni neitun Óðins fyrir dómi. Hann var því sýknaður af ákærunni.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira