Innlent

Jón Bjarnason styður ekki ríkisstjórnarfrumvarp

Jón Bjarnason styður ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjórnarráðs Íslands. Hann telur að forsætisráðherra séu fengin of mikil völd með frumvarpinu.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lét bóka andstöðu sína við frumvarp um stjórnarráð Íslands á ríkisstjórnarfundi á föstudag.

Meðal þeirra breytinga sem finna má í frumvarpinu eru að ráðuneyti verði ekki lengur tilgreind sérstaklega í lögunum heldur verður hámarksfjöldi þeirra ákveðinn. Þannig hafi stjórnvöld hverju sinni frjálsar hendur um hvaða ráðuneyti skuli starfrækt.

Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu telur ráðherrann að þannig geti forsætisráðherra fært málaflokka á milli ráðuneyta hvenær sem er, burtséð frá því hvort mál séu kláruð eða ekki.

Jón telur því forsætisráðherra geta fært mál frá einstökum ráðherrum á hvaða stigi máls sem er ef forsætisráðherra er ekki sáttur með meðferð eða úrvinnslu málsins.

Jón Bjarnason hefur áður lýst því yfir að hann sé andvígur áformum ríkisstjórnarinnar um sameiningu ráðuneyta í eitt stórt atvinnuvegaráðuneyti.

Í bókun Jóns Bjarnasonar um málið kemur jafnframt fram að hann muni beita sér gegn frumvarpinu við meðferð þess í þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×