Undarleg samsuða „af vændi og barnasölu“ 13. janúar 2011 14:01 Halla Gunnarsdóttir segist ekki geta tjáð sig um mál Jóels en útilokar ekki almenn skrif um staðgöngumæðrun á vef sínum „
Með því að borga konu fyrir að ganga með barn er því verið að búa til undarlega samsuðu af vændi og barnasölu. Vændi í þeim skilningi að verið er að kaupa afnot af líkama annarrar manneskju og barnasölu því barnið er jú selt." Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, í pistli sem hún skrifar á vefsíðu sína árið 2007. Halla var ekki aðstoðarmaður Ögmundar þegar þessar línur voru ritaðar. „Í umræðum um staðgöngumæðrun er gerður greinarmunur á því að t.d. náin vinkona eða systir sé fengin til þess að ganga með barnið og að konu sé borgað fyrir að "sjá um starfið". Ef við viljum heimila það síðarnefnda er um barnasölu að ræða enda aðeins stigsmunur á því að selja barn með öðrum genum og hreinlega að sjá viðskiptatækifæri í því að fæða börn og selja þau," skrifar Halla einnig á vefsíðuna fyrir þremur árum. DV.is rifjaði upp þessi skrif Höllu fyrr í dag þar sem bent er á að viðhorf hennar til staðgöngumæðrunar kunni að vekja athygli þar sem hún er aðstoðarmaður þess ráðherra sem hefur með málaflokkinn að gera hér á landi. Mál Jóels Færseth, lítils drengs á Indlandi sem íslensk hjón eignuðust með aðstoð indverskrar staðgöngumóður, hefur vakið mikla athygli að undanförnu Innanríkisráðuneytið hefur þó ekki enn gefið út vegabréf fyrir Jóel þannig að hann geti komið til Íslands, en Alþingi honum íslenskan ríkisborgararétt í lok síðasta árs. Í yfirlýsingu sem ráðuneytið sendi frá sér fyrr í vikunni segir að íslensk yfirvöld bíði enn eftir svari við erindi til indverskra yfirvalda þar sem óskað er upplýsinga sem ætlað er að greiða úr óvissu um réttarstöðu barnsins, hvort íslenskum hjónin fari með forsjá þess samkvæmt indverskum lögum og hvernig indversk yfirvöld skilgreina ríkisfang barnsins. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna hagnýtar upplýsingar um álitaefni þegar kemur aðstaðgöngumæðrun. Þar kemur fram að í flestum tilvikum leikur lítill vafi á því hverjir eru foreldrar barns, hvaða ríkisfang barn fær við fæðingu og til hverra barn eigi tilkall samkvæmt framansögðu. Á því eru þó undantekningar, eins og dæmi Jóels sýnir. Bent er á að íslensk yfirvöld eru aðilar að Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins en í honum er kveðið á um réttindi barnsins í margvíslegu tilliti. Þegar blaðamaður Vísis hafði samband við Höllu sagðist hún ekki geta tjáð sig um þetta einstaka mál. Hún ætlar heldur ekki að reka umræðu um staðgöngumæðrun í fjölmiðlum en útilokar ekki að hún skrifi annan pistil á vef sinn um málið. Það verði þó að koma í ljós.Tenglar:Pistill Höllu frá 2007 í heild sinniHagnýtar upplýsingar innanríkisráðuneytisins um staðgöngumæðrun
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Laun bæjarfulltrúa lækkuð Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Prófa HIV-bóluefni Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira