Bók Björns uppseld hjá útgefanda - 1500 eintök í fyrstu prentun Erla Hlynsdóttir skrifar 8. júní 2011 11:23 Bók Björns Bjarnasonar trónar á toppi metsölulista Eymundsson, aðra vikuna í röð
Fyrsta prentun af bók Björns Bjarnasonar, Rosabaugur yfir Íslandi, er uppseld hjá útgefanda. Jakob F. Ásgeirsson, útgefandi bókafélagsins Uglu, segir að við fyrstu atrennu hafi verið prentuð 1500 eintök af bókinni. Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að prenta fleiri eintök og býst hann við að álíka fjöldi verði í annarri prentun. „Salan hefur gengið alveg skínandi vel. Mér finnst það sérstaklega gleðilegt og vona að salan sé til marks um að fólk sé að ná áttum í þessu máli," segir Jakob og á þar við Baugsmálið svonefnda. Hann segist ekki hafa vitað við hverju hann ætti að búast þegar hann ákvað að gefa út bókina, enda erfitt að segja til fyrirfram hversu vel bækur seljast. Hann er því ánægður með viðtökurnar. Sem kunnugt er tókust Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, og eigendur Baugs, feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson, harkalega á vegna Baugsmálsins í ræðu og riti. Jakob hefur þó ekki áhyggjur af því að í bókinni sé aðeins birt ein hlið málsins. „Þeir sem skoða bókina sjá að þetta er byggt á opinberum heimildum. Auðvitað leggur hann út af sumu með sínum hætti. Fyrst og fremst er hann samt að draga saman efnisatriði í þessu stóra máli," segir Jakob. Spurður hvort Rosabaugur yfir Íslandi sé mest selda bók Uglu á árinu segir Jakob að hún slagi nú þegar hátt upp í þá vinsælustu, Engan þarf að öfunda eftir Barböru Demick þar sem flóttamenn frá Norður-Kóreu lýsa reynslu sinni. Bók Björns er enn til í bókabúðum en Jakob vonast til að fá aðra prentun í hendur um miðjan mánuðinn.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira