Össur afléttir trúnaði 8. júní 2011 12:58 Mynd/GVA
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, mun aflétta trúnaði af gögnum utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar varðandi stuðning Íslands við aðgerðir Nató í Líbíu. Þetta gerði hann í kjölfar áskorunar Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í utandagskrárumræðu um málið á Alþingi í dag sem Bjarni var málshefjandi að. Össur sagðist ekki hafa neitt að fela. Stuðningur Íslands við aðgerðir Atlantshafsbandalagsins hafi verið ræddur í ríkisstjórn og á fundi utanríkismálanefndar. Þar hafi komið fram skýr afstaða Vinstri grænna sem væru mótfallnir aðgerðunum og veru Íslands í Nató. Össur sagðist aftur á móti hafa haft fullt umboð til að taka ákvörðun í nafni Íslands þar sem meirihluti hafi verið fyrir því meðal þingmanna að styðja aðgerðirnar. Þingmenn úr öllum flokkum tóku þátt í umræðunum. Fram kom í máli Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, að hún teldi að efnt hefði verið til umræðunnar til að koma pólitísku höggi á VG. Umræðan væri undarleg. Árni Þór Sigurðsson og Guðríður Lilja Grétarsdóttir, þingmenn VG, tóku þátt í umræðunni. „Til hamingju VG, vel gert,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, að verið væri að varpa sprengjum í Líbíu og af þeim sökum væri afstaða Vinstri grænna hlægileg. Ljóst væri að Ögmundur Jónsson sem mikið hafi talað um frið færi í raun og veru ekki friðarins maður. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, talaði í þessu samhengi um furðulegan leikaraskap af hálfu VG. Ekki væri við utanríkisráðherra að sakast.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira