Ræddu um fundarstjórn í rúmar 40 mínútur 8. júní 2011 13:57 Guðlaugur Þór var meðal þeirra þingmanna sem tóku þátt í umræðum um fundarstjórn forseta í dag. Mynd/Stefán Karlsson
Þingmenn ræddu um fundarstjórn forseta Alþingis í meira en 40 mínútur á þingfundi í hádeginu. Margir þeirra töluðu um svokallað minna kvótafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og málsferðina í kringum málið. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar sagðist telja að þingmenn þyrftu að reyna að jafna ágreining á fundum en ekki í þingsal því slíkt væri Alþingi ekki til framdráttar. Stefnt er að þinglokum á næstu dögum en í kvöld fara fram almennar stjórnmálaumræður sem oftast eru nefndar Eldhúsdagsumræður. Hart hefur verið tekist á um forgangsröðun og vinnulagið á Alþingi undanfarna daga. Sjálfstæðis- og framsóknarmenn hafa meðal annars gagnrýnt umrætt kvótafrumvarp harkalega en enginn sátt náðist um afgreiðslu málsins á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar í morgun. Á fundinum var frumvarpið afgreitt út úr nefndinni við litla gleði þingmanna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks.Rugl og drasl Þuríður Backman, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði að komið væri til móts við sjónarmið stjórnandstöðunnar hvað frumvarpið varðar en að öllum hafi verið ljóst að komið væri af afgreiðslu þess. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, gaf lítið fyrir þau orð. „Eigum við ekki að taka málið upp úr skotgröfunum eins og alltaf er verið að tala um og líta í eigin barm. Þetta mál er dautt, þetta er rugl og þetta er drasl sem ber að henda." Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði frumvarpið handónýtt og að það væri enginn vilji að hálfu forystumanna ríkisstjórnarinnar til að ná sátt um kvótafrumvarpið. Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði málsmeðferðina fyrir neðan allar hellur og til skammar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, tók þátt í umræðunni og sagði mikilvægt að koma skikk á þingstörfin. Þá sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ekki hægt að hafa vinnubrögðin óvandaðri.Gerði ekki athugsemdir við fundarstjórnina Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, gaf lítið fyrir gagnrýni þingmanna stjórnarandstöðunnar og sagði að það hefði alltaf legið fyrir að stefnan væri að afgreiða umrætt frumvarp sem lög á yfirstandandi vorþingi. Meirihlutann hefði mætt stjórnarandstöðunni, miklar umræður hefðu farið fram í nefndinni auk þess sem gerðar hefu verið breytingar á frumvarpinu. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagðist ekki gera athugasemdir við fundarstjórn forseta, en sagði hins vegar: „Ég vil koma þeirri beiðni fram við forseta og hæstvirta forsætisnefnd að við þingmenn og fulltrúar þingmanna reynum að jafna ágreining um þingstörfin á fundum okkar en ekki í ræðustól Alþingis. Ég held að það sé hvorki þeim málum sem hér er verið að ræða til framdráttar né Alþingi og okkur sjálfum ef út í það er farið."
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Sjá meira