Friður á vinnumarkaði afar mikilvægur 12. janúar 2011 17:05 Forsætisráðherra segir fundina með forsvarsmönnum ASÍ og SA fyrr hafa verið góða. Mynd/Anton Brink
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hvatti í dag forsvarsmenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins til að gæta hófs í kröfugerð á hendur ríkinu svo aðhalds- og stöðugleikamarkmiðum ríkisstjórnarinnar verði ekki stefnt í hættu. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins áttu í sitthvoru lagi fund með Jóhönnu og Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, í dag til að fara yfir stöðuna í kjaramálum og mögulega aðkomu stjórnvalda að samningagerðinni. Jóhanna fjallar um fundina á síðu sinni á samskiptavefnum Facebook. Þar segir hún að góða fundi hafi verið að ræða. „Fátt er mikilvægara fyrir hag almennings og fyrirtækja en að áframhaldandi friður ríki á vinnumarkaði og að sátt náist sem fyrst um sanngjarnar og raunhæfar kjarabætur. Ríkisstjórnin mun leggja sitt af mörkum til að svo geti orðið," segir forsætisráðherra. Fyrr í dag sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, að kaupmáttur verði að aukast með næstu kjarasamningum og hugmyndir atvinnurekenda um launahækkanir séu langt frá því að duga til þess. Þá verði að færa lífeyriskjör almennings til móts við kjör opinberra starfsmanna.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Laun bæjarfulltrúa lækkuð Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Prófa HIV-bóluefni Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira