Algengt að börn niður í sjö til átta ára séu tekin með á sjó 16. nóvember 2011 14:09 Myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Það er algengt að börn niður í 7-8 ára gömul séu tekin með á sjó," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, spurður hvort það sé algengt að börn undir fimmtán ára aldri séu tekin með á sjóinn í veiðitúra. Svar Sævars er í raun stutt og einfalt; það er algengt. Hann áréttar hinsvegar í samtali við Vísi að börnin séu þá ávallt tekin með sem farþegar. Það er ekki þannig að þau vinni myrkranna milli á bátunum. Samkvæmt sjómannalögum má ekki hafa yngri en fimmtán ára við vinnu á skipum. Séu þeir yngri fæst ekki lögskráning, sem þýðir í raun að börnin eru þá ótryggð komi eitthvað upp á. Aftur á móti segir Sævar að nú sé hægt að lögskrá alla farþega, meðal annars börnin sem sjómenn virðast oftar en ekki taka með sér. „Ég á fjögur börn og hef tekið þau öll með mér. Í mislangan tíma að vísu, og þau hafa að auki mismikinn áhuga á þessu, en þau hafa öll komið með mér," segir Sævar sem þykir það ekki sérstaklega fréttnæmt að þrettán ára gamli drengurinn, sem varð fyrir kvikindislegu ofbeldi á Erling KE-140, hafi verið svo ungur um borð. Hann bendir á að faðir hans hafi verið með honum um borð. Ekki er ljóst hvort drengurinn, sem varð fyrir ofbeldinu, hafi verið við vinnu á netabátnum, en í dóminum lýsir hann því að hann hafi verið að verka fisk þegar hann varð fyrir ofbeldi. Því er hægt að draga þá ályktun að drengurinn hafi verið að störfum um borð í bátnum. Það er skipstjórinn sem ber fulla ábyrgð á lögskráningu manna um borð. Sé það ekki virt er um lögreglumál að ræða.
Tengdar fréttir Jónas Garðarsson: Maður er eiginlega orðlaus "Þetta er alveg út í bláinn,“ segir Jónas Garðarsson, sjómaður til fjölda ára og formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, um dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, þar sem fjórir skipverjar níddust á þrettán ára dreng með kvikindislegum hætti. 15. nóvember 2011 13:21 Umboðsmaður barna fagnar dómi yfir sjómönnum Umboðsmaður barna fagnar dómnum yfir fjórum sjómönnum, sem beittu þrettán ára gamlan dreng kvikindislegu ofbeldi í tíu daga veiðitúr þar síðasta sumar. 15. nóvember 2011 16:20 Fjórir sjómenn níddust á þrettán ára dreng: "Var svona væg busun“ Fjórir sjómenn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að beita þrettán ára dreng kynferðislegu ofbeldi í tíu daga veiðiferð með skipi. Faðir drengsins var einnig á skipinu. 15. nóvember 2011 11:01 Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sjá meira
Jónas Garðarsson: Maður er eiginlega orðlaus "Þetta er alveg út í bláinn,“ segir Jónas Garðarsson, sjómaður til fjölda ára og formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, um dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, þar sem fjórir skipverjar níddust á þrettán ára dreng með kvikindislegum hætti. 15. nóvember 2011 13:21
Umboðsmaður barna fagnar dómi yfir sjómönnum Umboðsmaður barna fagnar dómnum yfir fjórum sjómönnum, sem beittu þrettán ára gamlan dreng kvikindislegu ofbeldi í tíu daga veiðitúr þar síðasta sumar. 15. nóvember 2011 16:20
Fjórir sjómenn níddust á þrettán ára dreng: "Var svona væg busun“ Fjórir sjómenn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að beita þrettán ára dreng kynferðislegu ofbeldi í tíu daga veiðiferð með skipi. Faðir drengsins var einnig á skipinu. 15. nóvember 2011 11:01
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent