Vilhjálmur prins steggjaður á Íslandi 1. apríl 2011 19:11
Vilhjálmur Bretaprins lenti hér á landi í gær en steggjapartý var haldið á Reykjavík Hilton Nordica í kjölfarið. Íslensk stelpa sem var í partýinu segir Vilhjálm meðal annars hafa sungið í karókí. Hann mun fara af landi brott á morgun. Það var seinni partinn í gær sem þota bresku krúnunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli. 8-10 manna hópur af nánustu vinum Vilhjálms var með í för en hópurinn hélt beint á Reykjavík Hilton Nordica. Efsta hæð hótelsins var leigð undir hópinn og gistir Vilhjálmur í forsetasvítunni. Þar var síðan haldið steggjapartý til heiðurs Vilhjálmi í gærkvöldi.Skjáskot af frétt The Sun um máliðSamkvæmt breska blaðinu The Sun sem fjallaði um málið seinni partinn í dag voru nokkrar íslenskar stúlkur í partýinu, sem var nokkuð villt ef marka má mynd sem birtist með greininni. Ein af þeim sem var í partýinu er hin landsþekkta Tobba Marinósdóttir en vinur hennar sem rekur viðburðarfyrirtæki hér á landi sá um skipulagninu á ferðinni. Hún segir að Vilhjálmur hafi meðal annars sungið í karókí, hann hafi verið mjög viðkunnalegur og ekki litið stórt á sig. Myndatökur í partýinu voru stranglega bannaðar en þó náðust myndir á síma í anddyri hótelsins í morgun rétt áður en hópurinn fór út í rútu. Eftir því sem fréttastofa kemst næst mun hópurinn mæta á sérstakt uppistandskvöld hjá Mið-Ísland hópnum á Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Ari Eldjárn einn af forsprökkum hópsins vildi þó lítið gefa upp um kvöldið í samtali við fréttastofu og sagði að það væri trúnaðarmál hverjir kæmu á uppistand hjá hópnum. Heimildir fréttastofu herma að einhverjum gestum verði leyft að fylgjast með kvöldinu sem hefst í Þjóðleikhúskjallaranum klukkan átta, um þetta gildi gamla góða reglan, fyrstir koma fyrstir fá.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira