Færist í vöxt að fólk hræðist að bera vitni 1. apríl 2011 18:40
Það færist í vöxt að fólk hræðist að bera vitni í sakamálum af ótta við hótanir ofbeldismanna. Hæstiréttur sýknaði í gær mann af ákærum um alvarlega líkamsárás eftir að meint fórnarlamb hans neitaði að bera vitni. Í janúar 2009 var ráðist á mann á heimili hans í Mosfellsbæ. Hann var lúbarinn með hnúajárni þannig að hann nef- og kinnbeinsbrotnaði auk þess sem hann missti fjórar tennur og hlaut djúpa skurði. Þegar réttað var í málinu neitaði fórnarlambið að bera vitni. Það kom ekki að sök því héraðsdómur dæmdi árásarmanninn engu að síður í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hæstréttur sýknaði hins vegar árásarmanninn í gær, fyrst og fremst á þeirri forsendu að ekki lægi fyrir vitnisburður fórnarlambins um málsatvik. Samkvæmt heimildum fréttastofu mátti fórnarlambið í þessu máli sæta ítrekuðum hótunum, þekktra ofbeldismanna, um að hann og fjölskylda hans myndu hafa verra af ef hann myndi bera vitni gegn árásarmanni sínum. Fórnarlambið lét undan og því fór sem fór. Lögreglan segir að það sé ekki nýtt og það færist í vöxt að vitnum og aðstandendum sé hótað. „Jájá, þeim málum hefur fjölgað," segir Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri Jón segir að hótanir af þessu tagi haldist oft í hendur við skipulagða glæpastarfsemi. Fólki sé hótað og ógnað og reynt sé að torvalda málum fyrir dómstólum. Hann ítrekar hins vegar að lögreglan búi yfir úrræðum til að vernda þá sem fyrir hótunum verða. Og á að þau úrræði séu árangursrík. „Við vitum um miklu fleiri mál þar sem hótendur hafa látið af háttsemi sinni frekar en haldið áfram," segir Jón.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira