Innlent

Fórnarlamb líkamsárásar sló til sjúkraflutningamanns

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Sjúkrabíll var kallaður á Flúðir í nótt vegna tilkynningar um mann sem hafði lent í líkamsárás á skemmtistað á svæðinu. Það var maðurinn sjálfur sem tilkynnti lögreglu að hann hefði lent í árásinni en það mátti skilja hann þannig að hann væri nefbrotinn og með brotna tönn.

Þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang kom þó í ljós að maðurinn var mun minna slasaður en í fyrstu var talið. Maðurinn var hinsvegar verulega drukkinn og brást ókvæða við þegar sjúkraflutningamennirnir reyndu að sinna honum. Sló hann þá til annars þeirra en höggið geigaði sem betur fer.

Sjúkraflutningamenn fóru þá af vettvangi og lögreglan róaði manninn niður. Hann var ekki handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×