Ekkert lát á snjóhreinsun um áramótin 30. desember 2011 15:26 Borgarbúar tókust á við mikið fannfergi í gær og í dag. Mynd/GVA
Starfsmenn sem sinna snjóhreinsun og sorphirðu hafa átt langa vinnudaga að undanförnu og ekki verður mikil hvíld um áramótin. Vinna við snjóhreinsun hefst klukkan fjögur að morgni gamlársdags og verður unnið fram eftir degi. Þá eru einnig vaktir á nýársdag og aukamannskapur verður ræstur út eftir þörfum. Undanfarna daga hefur verið unnið í öllum hverfum borgarinnar. Um 70 starfsmenn á vegum borgarinnar og verktaka á hennar vegum er í vinnu við snjóhreinsun og hafa þeir 50 tæki til verksins, 39 gröfur og 11 vörubíla. Eins og Fréttablaðið greindi frá var gærdagurinn snjóþyngsti dagur í áratugi. Og snjóhreinsun stefnir í að verða afar kostnaðarsöm fyrir Vegagerðina og borgina. Í dag færðist athyglin meira að efri byggðum þar sem færð var tekin að þyngjast eins og í Grafarholti þar sem snjó hefur skafið. Í dag huguðu starfsmenn Reykjavíkurborgar einnig að niðurföllum en spáð hefur verið hlýindum með kvöldinu og því þótti rétt að hafa varann á. Íbúar eru hvattir til að huga að niðurföllum sem og að slá niður grýlukerti þar sem hætta er á að þau geti fallið á fólk. Starfsmenn í sorphirðu hafa einnig unnið langa daga og verða þeir við störf á gamlársdag til að vinna upp þá töf sem hefur orðið á sorphirðu vegna þungrar færðar. Þrátt fyrir þunga færð er sorphirða þó aðeins degi á eftir upphaflegri áætlun. Á sorphirðudagatali á vef Reykjavíkurborgar má sjá hvenær sorp verður næst hirt. Íbúar eru hvattir til að hreinsa frá sorptunnum þá daga sem sorphirðan er á ferðinni. Í dag og á gamlársdag er unnið í Fossvogi og Breiðholti.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira