Þetta er búinn að vera frábær ferill 5. mars 2011 11:00 Eyjólfur Kristjánsson heldur upp á fimmtugsafmælið sitt með tónleikaferð um landið og safnplötu. fréttablaðið/gva
Eyjólfur Kristjánsson gefur út fimmtíu laga safnplötu og fer í sína stærstu tónleikaferð til þessa í tilefni af fimmtugsafmæli sínu. Tónlistarmaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson heldur upp á fimmtugsafmælið sitt, 17. apríl, með því að fara í sína stærstu tónleikaferð um landið til þessa. Hann ætlar að spila á fimmtíu tónleikum á þessu ári. Þeir fyrstu verða í Hveragerði 21. mars og þeir síðustu í október. Í tilefni af afmælinu gefur Eyjólfur, eða Eyfi, einnig út fimmtíu laga plötu. Þar verða öll hans bestu lög eins og Draumur um Nínu og Ég lifi í draumi en einnig nokkur glæný. Hann segist sáttur þegar hann lítur yfir farinn veg á þessum tímamótum. „Þetta er búinn að vera frábær ferill, mér finnst það. Ég er búinn að vera rosalega hamingjusamur og ánægður með það sem ég er búinn að gera. Núna spýtir maður í lófana og gerir pínulítið meira,“ segir Eyfi hress. Hann hefur „aðeins“ gefið út sex sólóplötur á þrjátíu ára ferli sínum í bransanum. Síðasta platan hans með nýju efni, Stjörnur, kom út 2003. Eyfi hefur spilað þeim mun meira úti um allar trissur og hefur alltaf jafngaman af því. „Það eru einhverjir þrír til fjórir staðir á landinu sem ég hef aldrei spilað á og ég loka því núna með þessum túr,“ segir hann og nefnir Grímsey og Hofsós sem dæmi um nýja staði. „Ég hlakka rosalega mikið að byrja þennan túr.“ Eyfi hefur verið duglegur að búa sér til verkefni á ferlinum. Eitt slíkt verður í Salnum í Kópavogi 30. apríl þegar haldið verður upp á að tuttugu ár verða liðin síðan hann söng Draum um Nínu með Stefáni Hilmarssyni í úrslitum Eurovision í Róm. Á afmælisdeginum sjálfum verður hann í slagtogi með annarri dægurlagahetju, Björgvini Halldórssyni, á sextíu ára afmælistónleikum hans í Háskólabíói. „Það er æðislegt að geta aðstoðað minn gamla góða vina Björgvin á hans tímamótum. Kannski getum við pínulítið haldið upp á mitt afmæli í leiðinni,“ segir Eyfi. Aðspurður segist hann ætla að rækta fjölskylduna meira í tilefni af þessum tímamótum sínum. „Það er ekkert voðalega fjölskylduvænt að vera alltaf í burtu. Ég ætla að reyna að taka hana með í nokkrar ferðir. Ég á tvær dætur, ellefu og fimmtán ára, og þær hafa gott af því að sjá landið eins og ég er búinn að gera.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira