Gagnrýnir Ferðaklúbbinn fyrir kortagrunn 22. september 2011 13:04 Jeppamenn. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Umhverfisstofnun er ósátt við Ferðaklúbb 4x4 eftir að þeir birtu GPS kortagrunn með upplýsingum um vegi, slóða og aðrar akstursleiðir á Íslandi. Umhverfisstofnun segir að meðal þeirra leiða sem þar eru birtar eru vegir og slóðar sem hefur verið lokað og bannað er að aka eftir. Ennfremur eru sumar þeirra leiða hættulegar að mati stofnunarinnar sem telur birtingu ferðaklúbbsins á þessum upplýsingum ekki til þess fallna að draga úr akstri utan vega þar sem margir sækja sér upplýsingar um ferðaleiðir á vef klúbbsins. Stofnunin hefur átt í samstarfi við ferðaklúbbinn, ásamt fjölmörgum öðrum aðilum, í samráðsnefnd umhverfisráðuneytisins um akstur utan vega þar sem unnið er að því að finna leiðir til þess að draga úr akstri utan vega. Meðal þeirra verkefna sem unnin hafa verið í þessum efnum er átak í því að fjarlægja úr GPS ferðakortum upplýsingar um slóða og vegi sem eru lokaðir að því er kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun. Á vegum ráðuneytisins er starfrækt nefnd sem vinnur að því að gera miðlæga skrá yfir allar löglegar akstursleiðir á Íslandi og telur stofnunin að upplýsingum og ábendingum eigi að koma á framfæri á þeim vettvangi en ekki með birtingu GPS kortagrunns sem hætt er við að margir muni nota sem ferðakort. Umhverfisstofnun segist svo vænta og vonast til að eiga áfram uppbyggilegt samstarf við Ferðaklúbbinn 4x4, sem og flesta aðila með það að markmiði að draga úr og koma í veg fyrir akstur utan vega.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira