Örlagaríkt einkanúmer 9. apríl 2011 13:00 Einkanúmer Sverris hefur reynst örlagavaldur í lífi hans.fréttablaðið/GVA „
Þegar ég var á sjó í gamla daga kölluðu strákarnir mig Svera, til að stytta nafnið,“ segir Sverrir Arnar Baldursson, en hann keyrir um bæinn á Volvo með einkanúmerið SVERI. Númeraplatan hefur reynst örlagavaldur í lífi Sverris. Hann stofnaði fyrirtækið Sveri ehf. fyrir tveimur árum, en það starfar í fæðubótarefnabransanum. Hann valdi númeraplötuna þó ekki sjálfur. „Fyrir svona átta árum setti ég bílinn á verkstæði og þegar ég sótti hann var konan mín búin að láta setja númerið á,“ segir Sverrir og bætir við að svipurinn á þeim Svera hafi verið furðulegur þegar bíllinn rann út með nýrri númeraplötu. „Svo fæ ég augnagotur frá konunum, en þetta getur þýtt ýmislegt hjá þeim.“ Annar prótínáhugamaður, vöðvatröllið Egill Einarsson, er með einkanúmerið Þykki. Hann fékk númeraplötuna í útskriftargjöf frá félögum sínum, sem beittu svipaðri aðferð og kona Sverris. Sverrir segist þó hafa heyrt að sá Þykki hafi frekar viljað vera sá Sveri, en Sverrir á númeraplötuna og nafnið skuldlaust. „Ég á einkarétt á Svera,“ segir hann léttur. Sverrir hyggst markaðssetja sérstök Svera-fæðubótarefni fyrir þá sem vilja byggja upp mikinn vöðvamassa, en býður einnig upp á hefðbundin efni fyrir þá sem kjósa að vera rýrari. En ert þú sjálfur að rífa í lóð? „Já. Maður verður að vera með í þessu ef maður ætlar að kynna efnin. Ég má ekki vera spikaður eða grindhoraður ef ég ætla að reyna að selja einhverjum fæðubótarefni,“ segir Sverrir Sveri og hlær.- afb
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira