Langlífi og lök ávöxtun kostar borgina 8,6 milljarða 27. desember 2011 05:00 Meðalaldur borgarstarfsmanna hefur hækkað um fimm ár og lífslíkur þeirra aukist með tilheyrandi byrðum fyrir lífeyrissjóð þeirra. Fréttablaðið/GVA
Hækka þarf iðgjald Reykjavíkurborgar í lífeyrissjóð starfsmanna um tæp fjögur prósent eigi A-deild sjóðsins að standa undir skuldbindingum sínum. Í greinargerð Kristbjargar Stephensen borgarlögmanns og Birgis Björns Sigurjónssonar fjármálastjóra sem lögð var fram í borgarráði segir, að upphaflega hafi verið talinn öruggur grundvöllur fyrir A-deildinni. Fljótlega hafi þó annað komið á daginn. Hækkun framlags borgarinnar úr 11,5 í 112 prósent á árinu 2007 hafi ekki dugað til. Hækka þurfi framlagið um næstum fjögur prósent í viðbót. Ástæðurnar fyrir veikri stöðu A-deildarinnar segja Kristbjörg og Birgir vera verulegar breytingar á forsendum varðandi lífslíkur og örorkulíkur annars vegar og hins vegar slæm skilyrði til ávöxtunar, einkum vegna hrunsins 2008 en einnig vegna áhrifa netbólunnar upp úr árinu 2000. Hallinn sé nú 13 milljarðar, þar af megi rekja 8,6 milljarða til breytinga á lífslíkum. Meðalaldur sjóðfélaga sé nú fimm árum hærri en við stofnun sjóðsins. Lagalega sé ekkert annað í stöðunni en að hækka framlag borgarinnar. „Undirrituð vara við því að fresta slíkri endurskoðun mótframlags lengur en eitt ár,“ segja borgarlögmaður og fjármálstjóri borgarinnar. Borgarráð ákvað að kalla eftir frekari greiningu á stöðunni og hugsanlegum valkostum.- gar
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira