Ekki um tvo erlenda menn að ræða 10. nóvember 2011 04:00 Greinilegir áverkar voru á konunni þegar hún leitaði til lögreglu en hún hefur dregið fyrri vitnisburð sinn til baka.fréttablaðið/gva
Ekki var um tvo erlenda karlmenn að ræða þegar ráðist var á tæplega tvítuga konu í Vestmannaeyjum á sunnudagsmorgninum síðastliðnum. Konan hefur dregið vitnisburð sinn til baka en hefur ekki viljað upplýsa hver eða hverjir það voru sem réðust á hana. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í Vestmannaeyjum kom þetta í ljós við rannsókn málsins, en konan leitaði til lögreglu seinnipart sunnudagsins og kærði tvo karlmenn, sem hún taldi vera af erlendum uppruna, fyrir líkamsárás. Hún sagði þá hafa ráðist á sig, áreitt sig kynferðislega og rifið utan af henni sokkabuxurnar en hún hefði komist undan. Konan sagði mennina hafa verið á þrítugsaldri, um 180 sentímetra á hæð, dökkhærða og lýsti klæðaburði þeirra. Greinilegir áverkar voru á konunni, svo ekki fór á milli mála að ráðist hafði verið á hana. Hins vegar hefur hún ekki tilgreint um hvern var að ræða, líkt og áður sagði, eftir að hún breytti vitnisburði sínum. Málið er enn í rannsókn, en að sögn lögreglu er lítið hægt að gera fyrr en konan er tilbúin að veita upplýsingar um þann eða þá sem voru að verki.- sv
Mest lesið „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Fleiri fréttir Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Sjá meira