Innlent

Viðbrögð við kynferðisbrotum rædd

Herra Karl Sigurbjörnsson biskup hitti dr. Marie Fortune á fundi í gær. fréttablaðið/gva
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup hitti dr. Marie Fortune á fundi í gær. fréttablaðið/gva
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði með dr. Marie Fortune og fagráði þjóðkirkjunnar á Biskupsstofu í gær. Eins og greint hefur verið frá er dr. Fortune stödd hér á landi til að halda námskeið og málþing á vegum þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot innan kirkjunnar og viðbrögð hennar við því.

Biskup vildi ekki tjá sig um fundinn við Fréttablaðið en Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs þjóðkirkjunnar, segir umræður þar hafa verið góðar. „Andrúmsloftið var verulega gott, það var mikið talað og mikið spurt,“ segir Gunnar Rúnar. „Það var mikið rætt hvað hefur verið vel gert í þessum efnum innan kirkjunnar og hvar við þurfum að vera vakandi við að koma hlutum af stað og spyrja hvort þeir séu að virka.“

Gunnar segir umræðuna mjög hafa snúið að því hvernig hægt sé að koma til móts við þolendur kynferðisofbeldis og hjálpa þeim við að koma málunum í réttan farveg. Hann segir dr. Fortune vera afar styðjandi við það starf sem fagráðið innir af hendi.

„Það er óheyrilega mikilvægt að styðja við fórnarlömb og efla og koma hlutum í farveg, eins og hlutverk okkar er,“ segir hann.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×