Framtíðarsýn á Þingvelli í hugmyndaleit 20. október 2011 11:00
Þingvellir Mikil áhersla er á uppbyggingu veitinga- og veisluaðstöðu í mörgum þeirra 102 tillagna sem bárust í hugmyndasamkeppni um þróun þjóðgarðsins á Þingvöllum. Sumir telja mikilvægara að fækka mannvirkjum í friðlandinu. „Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla, án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins," segir í skilgreiningu Þingvallanefndar á hugmyndaleitinni. Sýning á tillögunum hófst á þriðjudag í Ráðhúsinu í Reykjavík. Meðal þeirra sem eiga tillögur eru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra. Steingrímur leggur til að ekki verði byggt á Valhallarreitnum að nýju heldur verði aðstaða til að slá upp samkomutjöldum sem taka megi niður að notkun lokinni hverju sinni. Hjörleifur gagnrýnir Þingvallanefnd harðlega fyrir að hafa ekki hafist handa við að fjarlægja sumarbústaði úr þjóðgarðslandinu heldur þvert á móti fest þá í sessi með nýjum lóðarleigusamningum til tíu ára. Eiríkur Bridde stingur upp á nýstárlegum sýningarskála á Valhallarreitnum sem yrði hálfniðurgrafinn eins og „álfhóll" og að þangað væri hægt að komast með kláfi ofan af Hakinu. Hjörleifur Stefánsson arkitekt og Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður eru einnig meðal þeirra sem eiga tillögur. Margir nefna bætta göngustíga. Að minnsta kosti tveir vilja að boðnar verði útsýnissiglingar um Þingvallavatn á glerbytnu og jafnvel loftpúðaskipi. Þá eru nefndar kajakleiga og hestaferðir. Í einni tillögu er sett fram sú hugmynd að risavaxin stytta verði reist í líki landvættar og að samhliða verði reistar landvættastyttur í öðrum landshlutum. Einn leggur til að veitingasala verði í gamla Þingvallabænum og forsætisráðherra verði fundinn annar bústaður á friðsælli stað. Dómnefnd undir forystu Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fór yfir tillögurnar. Á föstudag kemur í ljós hvort einhverjar þeirra hljóta 200 þúsund krónur í viðurkenningarskyni. Dómnefndinni er heimilt að veita fimm slíkar viðurkenningar. gar@frettabladid.isÁlfhóll á Valhallarreit.Fréttablaðið/GVA
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira