Innlent

María ósátt við að hætta

María Sigurðardóttir
María Sigurðardóttir
Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Leikfélags Akureyrar, LA, telur að uppsögn Maríu Sigurðardóttur leikhússtjóra hafi verið gerð í fullri sátt við hana. María sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla í fyrradag þar sem fram kemur meðal annars að hún sé ósátt við að fá ekki að ljúka leikárinu. Þá segir hún að fjárhagsvandræðum leikfélagsins hafi verið haldið leyndum fyrir stjórn og leikhússtjóra, þó að útlit sé fyrir að þar sé um að kenna þekkingarskorti og reynsluleysi fremur en ásetningi.

Stjórn LA undirbýr nú ráðningu verkefnastjóra sem sinna á þeim verkefnum sem nauðsynleg eru í daglegum rekstri og verður sú staða auglýst á næstu dögum. Gangi viðræður við Akureyrarbæ sem skyldi verður staða leikhússtjóra auglýst um áramót.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×