Lífið

Þrumuguð og þrumustuð

Laddi, sem talar inn á myndina, ásamt hópi hressra krakka á forsýningunni.
Laddi, sem talar inn á myndina, ásamt hópi hressra krakka á forsýningunni. fréttablaðið/hag
Sáu þór Barnastjarnan Sveppi, dóttir hans Þórdís Katla, Bragi Þór Hinriksson og sonur hans Hinrik Huldar sáu teiknimyndina.
Fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd, Hetjur Valhallar: Þór, var forsýnd á fimmtudagskvöld í Smárabíói. Fjöldi fólks mætti á sýninguna og skemmti sér hið besta yfir ævintýrinu um þrumuguðinn.

Yfir sjö ár eru liðin síðan þróunarvinna við myndina hófst og á þeim tíma hefur framleiðslan teygt anga sína víða. Framleiðslulöndin eru þrjú, Ísland, Þýskaland og Írland, og hafa fleiri hundruð manns komið að gerð myndarinnar. Um helgina verður brotið blað í fjölda sýningarstaða á Íslandi því Hetjur Valhallar: Þór verður sýnd í 24 sýningarsölum á ellefu stöðum vítt og breitt um landið.

Kristín og Ægir Kristín Olga Gunnarsdóttir og Ægir Óli Matthíasson voru á meðal gesta.
í smárabíói Kolbeinn Marteinsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var í Smárabíói ásamt Birnu Kolbeinsdóttur og Kötlu Hauksdóttur.
Rut og ingólfur Rut Ingólfsdóttir og Ingólfur Hreggviðsson skemmtu sér vel.
á forsýningu Stefán Jóhannssson, Birna Sísí Jóhannsdóttir, Jóhann Gunnar Stefánsson, Stefán Gunnar Jóhannsson og Inga Rannveig Jóhannsdóttir mættu á forsýninguna.
feðgar Feðgarnir Christofer Lund og Ari Carl Lund sáu Hetjur Valhallar: Þór.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.