Bjarg á við rútubíl valt niður að byggð 15. október 2011 07:00 Þetta er næststærsti hnullungurinn sem hrundi úr Gleiðarhjalla í fyrradag. Hundurinn virðist smár við hlið bjargsins. Það stærsta er hins vegar vel ríflega tvöfalt stærra, falið inni í trjálundi. Mynd/Þorleifur Ágústsson
Munaði mjóu Eins og sjá má á myndinni hefðu björgin ekki þurft að velta mikið lengra til að brjóta íbúðarhúsnæði í mél.Mynd/Þorleifur Ágústsson „Þetta hefði farið í gegnum hvaða íbúðarhús sem er eins og ekkert væri,“ segir Þorleifur Ágústsson, sem horfði á gríðarstór björg hrynja úr Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðarbæjar á fimmtudag og staðnæmast rétt ofan við íbúabyggð. „Þetta var svakalegt. Það er alveg brjálæðisleg stærð á þessu og þetta fer mjög nálægt byggðinni,“ segir Þorleifur. „Það stærsta er eins og rútubíll.“ Hann segir björgin hafa oltið nokkur hundruð metra niður hlíðina, og því hafi fylgt mikill reykjarmökkur og læti. „Ég hélt fyrst að þota væri að fljúga hérna yfir, hávaðinn var svo svakalegur. Það mynduðust eldglæringar þegar þessi björg skullu saman á leiðinni niður.“ Þorleifur segir björgin öll mannhæðarhá og ætla má að þau séu tugir tonna að þyngd. Það stærsta ruddi sér leið inn í miðjan trjálund og átti hann óhægt um vik með að mynda það. Þorleifur segist ekki vita til þess að skelkaðir íbúar á svæðinu séu farnir að huga að því að reisa varnargarð í kjölfar þessa. „En það fór um marga sem sáu þetta því menn hafa aldrei upplifað grjóthrun af þessari stærðargráðu áður.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Gular viðvaranir taka gildi Veður Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“