Ákærður fyrir brugg og fíkniefnasölu 10. október 2011 05:00 Maðurinn er ákærður fyrir að selja bæði fíkniefni og landa.
Karlmaður um fimmtugt hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, kannabisræktun, bruggstarfsemi og sölu dóps og landa. Manninum er gefið að sök að hafa frá árinu 2006 til 20. apríl 2010 tekið við af ónafngreindum manni samtals einu kílói af amfetamíni og 400 grömmum af hassi. Hluta efnanna seldi hinn ákærði til ónafngreindra manna, að því er segir í ákæru. Þá ræktaði maðurinn rúmlega tuttugu kannabisplöntur í frystigámi á plani við sláturhús og seldi afurðirnar, sem námu tvö til þrjú hundruð grömmum af kannabis. Enn fremur er manninum gefið að sök að hafa í byrjun síðasta árs bruggað átján lítra af landa í bragga við hesthús og selt. Tvisvar sinnum var maðurinn tekinn með umtalsvert magn fíkniefna, sem hann geymdi í hesthúsi, á vinnustað hans í frystikistu og loks í ferðatösku. Taska fannst á heimili foreldra hans. Í henni var hass, maríjúana, amfetamín, kókaín, kannabislauf og kannabisfræ. Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og bruggtæki og ræktunarbúnaður verði gerð upptæk.- jss
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira