Loka barnaníðssíðum í kjölfar ábendinga 6. október 2011 07:15 Lögreglan hvetur foreldra til að fylgjast með netnotkun barna sinna, meðal annars til þess að koma í veg fyrir að þau sendi upplýsingar um sig til óprúttinna aðila.Nordicphotos/afp
Nær öllum vefsíðum sem tilkynntar hafa verið til Samtakanna Barnaheillar og innihalda kynferðisofbeldi gegn börnum hefur verið lokað með samstarfi embættis ríkislögreglustjóra og erlendra lögregluembætta. Þetta segir Hjálmar Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Í fyrradag var tekinn í notkun endurbættur ábendingahnappur hjá Barnaheill, þar sem almenningur getur tilkynnt um vefsíður sem hugsanlega innihalda barnaníð. Vefslóðin inn á hnappinn er www.barnaheill.is. „Ábending sem berst Barnaheill berst sjálfkrafa til embættisins,“ útskýrir Hjálmar ferli máls. „Viðkomandi vefslóð er skoðuð og athugað hvað sé í raun og veru á bak við hana. Stundum er innihaldið augljóst þegar í upphafi, en stundum þarf að kafa inn í vefsíðuna til að sjá hvað er þar í gangi. Ef reynist vera um að ræða kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum er leitað eftir því hvaðan síðan er upprunnin. Sem betur fer reynast síðurnar í öllum tilvikum vera vistaðar erlendis. Þá er haft samband við viðkomandi lögregluyfirvöld í gegnum Interpol og þau taka þá málið yfir og gera sínar ráðstafanir.“ Spurður hversu miklum árangri ábendingahnappurinn skili þegar upp er staðið segir Hjálmar að í 99 prósentum tilvika sé vefsíðum með ólöglegu efni lokað. Stundum sé þegar búið að loka þessum síðum þegar íslenska lögreglan geri starfsbræðrum sínum erlendis viðvart, því þá hafi aðrir orðið fyrri til og gert viðvart um þær. „Ísland hefur sem betur fer verið hreint hvað þetta varðar fram til þessa. Embættið hefir sérstaklega litið til þess hvort einhver hér heima sé að vista slíka síðu en það hefur ekki reynst vera. Ella yrði mál af því tagi sent viðkomandi lögregluembætti til frekari rannsóknar.“ Hjálmar segir ekki framhjá því litið að allstór hópur fólks í heiminum selji aðgang að lokuðum vefsíðum sem innihalda barnaníð eða illa fengnar myndir af börnum. „Það er því nauðsynlegt að foreldrar og forráðamenn barna séu á varðbergi og vel meðvitaðir um hvað þau eru að gera á netinu, þar á meðal hvort reynt sé að lokka þau til að senda einhverjum upplýsingar um sig og myndir af sér.“ Hjálmar undirstrikar að ábendingarnar hafi fyrst og fremst skilað því að aðgengi fólks að þessum markaði sé lokað, auk þess sem þær hafi ríkt forvarnargildi. jss@frettabladid.is
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent